Styrkbeiðni vegna ferðar leiklistarnema FG
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
5. fundur
Bréf Bjarna Snæbjörnssonar leiklistarkennara við Fjölbrautaskólann í Garðabæ, f.h. leiklistarnema, var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar 10. mars 2015 og vísað til menningar- og safnanefndar. $line$Menningar- og safnanefnd tekur undir það sjónarmið, sem fram kemur í bréfi leiklistarkennarans, að leiklistarbrautin í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ hafi markað sér veigamikinn sess í list- og verknámi framhaldsskóla á Íslandi og vakið mikla athygli. $line$Samkvæmt fyrirliggjandi vinnureglum veitir menningar- og safnanefnd að jafnaði ekki ferðastyrki. Nefndin telur hins vegar mikilvægt að hlúð sé að leiklistarstarfsemi í bænum og felur því upplýsinga- og menningarfulltrúa að fylgja erindinu eftir með jákvæðri umsögn menningar- og safnanefndar til fræðslu- og menningarsviðs og bæjarstjóra.$line$
Bæjarráð Garðabæjar
02
10. (1678). fundur
Bæjarráð samþykkir vísa bréfinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.