27. fundur
27. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
15.07.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Almar Guðmundsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
01
Fyrirspurn Fólksins í bænum varðandi framlög Garðabæjar til leikskóla og ungbarnaleikskóla, dags. 10.07.14.
Lagt fram yfirlit yfir kostnað við smábarnaleikskóla og greiðslur til dagforeldra árin 2013 og 2014. Einnig lagður fram listi yfir starfandi dagforeldra.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni í heild.
02
Bréf formanns íþrótta- og tómstundaráðs og íþróttafulltrúa varðandi styrk, dags. 10.07.14.
Bæjarráð samþykkir tillögu formanns íþrótta og tómstundaráðs og íþróttafulltrúa um að veita KFG styrk að fjárhæð kr. 500.000 eins og undanfarin ár.
03
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi landsþing sambandsins árið 2014, dags. 04.07.14.
Lagt fram bréf Sambands ísl. sveitarfélaga þar sem boðað er til XXVIII. landsþings sambandsins á Akureyri dagana 24. til 26. september 2014.
04
Umsókn um byggingarleyfi - Garðatorg 7B
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna breytinga á lyftustokk þar sem þak er hækkað og endurbyggt til að uppfylla öryggisreglur
05
Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 37
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar 18 íbúða fjölbýlishúss við Holtsveg 37.
06
Umsókn um byggingarleyfi - Langalína 2
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna endurnýjun á gluggum og byggingar sólstofu á svölum íbúðar á 6. hæð (efstu hæð) í fjölbýlishúsinu við Löngulínu 2.
07
Umsókn um byggingarleyfi - Skeiðakur 8
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna breytinga á skorsteini o.fl. við Skeiðakur 8.
08
Umsókn um byggingarleyfi Garðaflöt 13
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna 27 m2 viðbyggingar við einbýlishúsið að Garðaflöt 13.
09
Umsókn um byggingarleyfi - Dalakur 8
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar einbýlishúss á lóðinni við Dalakur 8.
10
Bréf SSH varðandi tillögur stýrihóps um endurskoðun á vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu, dags. 07.07.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um kynningu á tillögunum í ágústmánuði.
11
Bréf umhverfisstjóra varðandi snyrtilegt umhverfi 2014, dags. 08.07.14.
Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi árið 2014.
13
Bréf Skáksambandi Íslands varðandi styrk vegna Ólympíumóts 2014, dags. 07.07.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.