33. fundur
33. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
02.09.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf SSH varðandi tillögur stýrihóps um endurskoðun á vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu, dags. 07.07.14.
Á fund bæjarráðs mætti Sveinn Óli Pálmarsson, verkfræðingur hjá Verkfræðistofunni Vatnaskilum og gerði hann nánari grein fyrir vinnu stýrihóps að gerð tillögu um endurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu.$line$$line$Tillagan miðar að því að skilgreina vatnsból á höfuðborgarsvæðinu og verndarsvæði þeirra þannig að íbúar á svæðinu hafi tryggan aðgang að hreinu grunnvatni til vatnstöku sem ekki þarfnast sérstakar meðferðar.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, vék af fundi kl. 08:25.
02
Bréf umhverfis- og auðlindarráðuneytinu varðandi dag íslenskrar náttúru 2014, dags. 27.08.14.
Lagt fram og vísað til umhverfisnefndar.
03
Bréf Sjálfsstæðisfélags Garðabæjar varðandi fasteignagjöld vegna Garðatorgs 7, dags. 26.08.14.
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014 ákvarðaði bæjarstjórn framlög til stjórnmálasamtaka á grundvelli 5. gr. laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðendur og um upplýsingaskyldu þeirra nr. 162/2006. Samkvæmt 6. gr. sömu laga er stjórnmálasamtökum óheimilt að veita viðtöku framlaga frá opinberum aðilum umfram það og getur því ekki komi til sérstakur styrkur til Sjálfstæðisfélags Garðabæjar á árinu 2014 til greiðslu fasteignaskatts af húsnæði félagsins.$line$$line$Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við ákvörðun á árlegu framlagi til stjórnmálasamtaka samhliða afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
04
Bréf íþróttafulltrúa varðandi opnunartíma Álftaneslaugar, dags. 27.08.14.
Bæjarráð samþykkir til reynslu tillögu íþrótta- og tómstundaráðs um lengdan opnunartíma Álftaneslaugar til áramóta.
05
Umsókn um byggingarleyfi - Aratún 10
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna reyndarteikninga fyrir einbýlishúsið við Aratún 10.
06
Umsókn um byggingarleyfi - Kirkjulundur 12-14
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna smávægilegra breytinga á innra skipulagi fjölbýlishússins við Kirkjulund 12 - 14.
07
Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðinsins varðandi stjórnkerfiskafla í viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu, dags. 22.08.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
08
Bréf SSH varðandi svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040, dags. 26.08.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
09
Bréf Mannvirkjastofnunar varðandi úttekt á Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins 2014, dags. 22.08.14.
Lagt fram.
10
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi framlög vegna samninga um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA), dags. 21.08.14.
Félagsmálastjóri upplýsti að verið er að ganga frá umsóknum til Jöfnunarsjóðs vegna samninga sem gerðir hafa verið við fatlað fólk um notendastýrða persónulega aðstoð.$line$$line$Lagt fram.