31. fundur
31. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
19.08.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Fyrirspurn Fólksins í bænum um heildarlaun bæjarstjóra og ferðakostnað bæjarstjóra og bæjarfulltrúa, dags. 14.08.14.
Lögð fram svör við fyrirspurn um heildarlaun bæjarstjóra og ferðakostnað bæjarstjóra og bæjarfulltrúa.
02
Skipulagsdagurinn 2014 - samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga.
Lagðar fram upplýsingar um dagskrá og skráningu á samráðsfund Skipulagsstofnunar og sveitarfélaganna sem fyrirhugaður er 29. ágúst n.k.
03
Bréf Jafnréttisstofu varðandi skyldur sveitarfélaga samkvæmt jafnréttislögum, dags. 14.08.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til lýðræðis-, jafnréttis- og forvarnanefndar.
04
Bréf Parkinsonsamtakanna á Íslandi varðandi styrk vegna raddþjálfunarnámskeiðs, mótt. 12.08.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
05
Bréf umhverfisstjóra varðandi skýrslu um sumarátak 2014, dags. 14.08.14.
Lagt fram.
06
Bréf umhverfisnefndar varðandi heildarendurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu, dags. 13.08.14.
Lagt fram.
07
Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 23-25
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna reyndarteikninga fyrir fjölbýlishúsið við Holtsveg 23-25.
08
Umsókn um byggingarleyfi - Suðurhraun 4A
Bæjarráð samþykkir afreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna breytinga á innra skipulagi atvinnuhúsnæðisins við Suðurhraun 4A.
09
Umsókn um byggingarleyfi - Kinnargata 10
Bæjarráð samþykkir afreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna nýbyggingar parhúss við Kinnargötu 10.
10
Umsókn um byggingarleyfi - Kinnargata 12.
Bæjarráð samþykkir afreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna nýbyggingar parhúss við Kinnargötu 12.
11
Umsókn um byggingarleyfi - Suðurhraun 6.
Bæjarráð samþykkir afreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna reyndarteikninga vegna viðbyggingar við Suðurhraun 6.
12
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi leyfi til að nefna Mýrina nafni styrktaraðila, dags. 12.08.14.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra útfærslu málsins í samráði við fulltrúa Stjörnunnar.