Endurskoðun samstarfsamnings um rekstur Hönnunarsafns Íslands.
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
12. fundur
Eiríkur Björn Björgvinsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, segir frá heimsókn sinni í Mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Eiríkur Björn Björgvinsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, greindi frá fundi með Karítas H. Gunnarsdóttur skrifstofustjóra og Baldri Þór Guðmundssyni sérfræðingi á skrifstofu menningarmála hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu 7. mars sl. Fundurinn var haldinn í framhaldi af heimsókn mennta- og menningarmálaráðherra í Hönnunarsafnið í byrjun þessa árs. Á fundinum var m.a. farið yfir drög að samstarfssamningi frá árinu 2016 sem byggði m.a. á samningi aðila frá 2006. Eiríkur greindi frá umræðum um mögulegar útfærslur á nýjum samningi eða samningum.
Umræður voru um útfærslur á nýjum samningi.
Bæjarráð Garðabæjar
02
11 (1679). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi viðræður við mennta- og menningarmálaráðuneytið um endurskoðun samnings um rekstur safnsins.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við mennta- og menningarmálaráðherra um endurskoðun samningsins og greiðslu stofnframlags til safnsins.