Beint í efni

Bréf stjórnar foreldrafélags og foreldráðs leikskólans Kirkjubóls um mönnun á leikskólanum Kirkjubóli. dags. 03.09.15.

Málsnúmer 1412018

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

37. (1705). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til fræðslu- og menningarsviðs og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2016 eins og áður hefur verið kynnt bréfritara.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

11 (1679). fundur

Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir hugmyndum um bætt starf leikskólanna í Garðabæ m.t.t. mönnunar og styrkingar á menntun starfsfólks.$line$$line$Bæjarráð tekur undir tillögur um að styrkja starfsemi skólanna með tilliti til núverandi mönnunar og felur fræðslu- og menningarsviði nánari útfærslu málsins. Þá samþykkir bæjarráð að málið verði tekið upp að nýju við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 og reynsla af aðgerðum metin með tilliti til endurskoðunar varðandi mönnun á leikskólum.

Leikskólanefnd Garðabæjar

03

5. fundur

Erindi foreldrafélags og foreldraráðs Kirkjubóls um mönnun á leikskólanum Kirkjubóli sem bæjarráð vísaði til nefndarinnar rætt. Leikskólanefnd telur mikilvægt að vel sé staðið að starfi leikskóla í Garðabæ sem ítrekað mælast með bestu þjónustu leikskóla á Íslandi. Augljóst er að þar er unnið faglegt gæðastarf undir leiðsögn áhugasamra leikskólastjóra. Nefndin telur mikilvægt að farið verði yfir reiknilíkan leikskóla sem stöðugildum er úthlutað eftir og hvernig starfsfólk nýtist sem best innan leikskólanna. Einnig hvort tækifæri séu til að gera betur í mannahaldi.

Bæjarráð Garðabæjar

04

47. fundur

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra og felur honum að ræða við bréfritara. Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í leikskólanefnd.