Beint í efni

47. fundur

09.12.2014
Bæjarráð Garðabæjar

47. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

09.12.2014

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1410455

01

Kynning á Flex þjónustu Stætó bs.

Á fund bæjarráðs mætti Einar Kristjánsson, sviðsstjóri Strætó bs. og gerði grein fyrir og kynnti skýrslu Mannvits hf. um Flex þjónustu Strætó bs. sem er þjónusta þar sem farþegi er sóttur á upphafsstað og ekið á áfangastað að eigin vali innan skilgreinds þjónustusvæðis (e. door-to-door service) á skilgreindum tíma dags. $line$$line$Einar fjallaði einnig um stöðu mála varðandi akstursþjónustu Strætó bs. fyrir fatlað fólk en frá og með næstu áramótum verður skipulag og umsjón akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu að Kópavogsbæ undanskildum í höndum Strætó bs.

Málsnúmer 1412049

02

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi styrk vegna námsupplýsingakerfis, dags. 25.11.14.

Lagt fram.

Málsnúmer 1311272

03

Dómur Hæstaréttar í máli er varðar framkvæmdir í Silfurtúni, dags. 20.11.2014.

Lagður fram.

Málsnúmer 1412018

04

Bréf foreldrafélags og foreldraráðs Kirkjubóls varðandi mönnun á leikskólanum Kirkjubóli, dags. 05.11.14.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra og felur honum að ræða við bréfritara. Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í leikskólanefnd.

Málsnúmer 1412002

05

Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um 40 stunda vinnuviku ofl. (færsla frídaga að helgum), 258. mál, dags. 28.11.14.

Lagt fram.

Málsnúmer 1412001

06

Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um almannatryggingar, 35. mál, dags. 28.11.14.

Lagt fram.

Málsnúmer 1412068

07

Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (fasteignaskattur af atvinnuhúsnæði ofl., 366.mál, dags. 04.12.14.

Lagt fram.

Málsnúmer 1410435

08

Bréf velferðarráðuneytisins varðandi fjárveitingar til reksturs hjúkrunarheimilisins Ísafoldar á árinu 2014, dags. 27.11.14.

Bæjarráð fagnar ákvörðun ráðuneytisins um viðbótarfjárveitingu að fjárhæð 16,0 mkr til að mæta kostnaði við flutninga og uppbyggingu á nýju hjúkrunarheimili.$line$$line$Bæjarstjóri upplýsti að á fjáraukalögum er gert ráð fyrir viðbótarfjárveitingu til Ísafoldar á árinu 2014 að fjárhæð 14,0 mkr.

Málsnúmer 1412006

09

Dalakur 6 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi vegna byggingar einbýlishúss við Dalakur 6.

Málsnúmer 1411305

10

Vörðuvegur 1 - 3 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi vegna jarðvinnu fyrir byggingu nýs skóla í Urriðaholti við Vörðuveg 1-3.

Málsnúmer 1412019

11

Strikið 3 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á innra skipulagi 1. hæðar Ísafoldar, hjúkrunarheimilis við Strikið 3.

Málsnúmer 1411272

12

Góðakur 5 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi vegna byggingar skjólveggs o.fl. við einbýlishúsið að Góðakri 5.

Málsnúmer 1411325

13

Erindi UMF Störnunnar varðandi beiðni körfuknattleiksdeildar um afnot af íþróttahúsinu við Ásgarð, dags. 28.11.14.

Bæjarráð samþykkir til reynslu að heimila UMF-Stjörnunni að framleigja íþróttahúsið í Ásgarði til Marels hf. fyrir árshátíð fyrirtækisins 7. mars 2015.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá skilmálum um málið þar sem tryggt verði að ekki komi til skerðingar á íþróttastarfi og skólastarfi. Tryggja skal að uppfyllt séu öll skilyrði til skemmtanahalds og að ekki komi til kostnaðar fyrir bæinn vegna málsins. Þá skulu lagðar fram tryggingar vegna hugsanlegs tjóns á húsnæði og búnaði.