Beint í efni

5. fundur

15.12.2014
Leikskólanefnd Garðabæjar

5. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Garðabæ

15.12.2014

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Viktoría Jensdóttir - formaður
  • Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
  • Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
  • Eymundur Sveinn Einarsson - aðalmaður
  • Kamilla Rut Sigurðardóttir - varamaður
  • Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Hafdís Guðný Jakobsdóttir - fulltrúi dagforeldra
  • Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
  • Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra

Ritari

  • Anna Magnea Hreinsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1411098

01

Tillaga um að settar verði reglur um samskipti skóla við trúar- og lífsskoðunarfélög.

Tillaga Bjartrar framtíðar um gerð reglna um samskipti leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila Garðabæjar við trúar- og lífsskoðunarfélög sem bæjarráð vísaði til nefndarinnar rædd. Leikskólanefnd telur að skólar í Garðabæ eigi að taka mið af viðmiðunarreglum þeim sem mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa sett í samráði við Heimili og skóla, Samband íslenskra sveitarfélaga, Siðmennt, Biskupsstofu og Kennarasamband Íslands. $line$Leikskólafulltrúa falið að hafa reglurnar aðgengilegar í leikskólum og á heimasíðu Garðabæjar.

Málsnúmer 1411096

02

Tillaga um greiðslur til foreldra sem eru heima með börnum þar til leikskóladvöl býðst.

Tillaga frá Fólkinu í bænum um greiðslur til foreldra sem bæjarráð vísaði til nefndarinnar rædd. Það er ekki vilji meirihlutans að auka greiðslur til foreldra og framlengja þannig fæðingarorlof þeirra, heldur fremur að byggja upp þjónustu við börn að fæðingarorlofi loknu. Liður í því er að auka framboð leikskóla fyrir ung börn og að hafa dvöl hjá dagforeldrum á sama verði og leikskóladvöl.

Málsnúmer 1412088

03

Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Frestað þar til úttekt Heilbrigðiseftirlits hefur farið fram og frekari gögn hafa borist.

Málsnúmer 1412089

04

Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Frestað þar til úttekt Heilbrigðiseftirlits hefur farið fram og frekari gögn hafa borist.

Málsnúmer 1412018

05

Mönnun á leikskólanum Kirkjubóli

Erindi foreldrafélags og foreldraráðs Kirkjubóls um mönnun á leikskólanum Kirkjubóli sem bæjarráð vísaði til nefndarinnar rætt. Leikskólanefnd telur mikilvægt að vel sé staðið að starfi leikskóla í Garðabæ sem ítrekað mælast með bestu þjónustu leikskóla á Íslandi. Augljóst er að þar er unnið faglegt gæðastarf undir leiðsögn áhugasamra leikskólastjóra. Nefndin telur mikilvægt að farið verði yfir reiknilíkan leikskóla sem stöðugildum er úthlutað eftir og hvernig starfsfólk nýtist sem best innan leikskólanna. Einnig hvort tækifæri séu til að gera betur í mannahaldi.

Málsnúmer 1401167

06

Kynningar og önnur mál 2014

a) Formaður segir frá fundi hans með leikskólastjórum.$line$b) Formaður kynnir þróunarsjóð sem settur verður á laggirnar á næsta ári. Í hann geta leikskólar sótt til að standa að þróunarverkefnum í skólunum. Drög að úthlutunarreglum fyrir sjóðinn verði lagar fyrir næsta fund.$line$c) Rætt um stöðuna í uppbyggingu leikskóla.$line$d) Kristín Sigurbergsdóttir leikskólastjóri Bæjarbóls kynnir starf leikskólans og gengur með nefndarmönnum um húsnæði hans.