48. fundur
48. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
16.12.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Staða málaflokka janúar til október 2014
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir stöðu málaflokka tímabilið janúar - október 2014.
02
Bréf Stjörnunnar varðandi áramótabrennu 2014, dags. 28.11.14.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
03
Reglur um greiðslur vegna dvalar barna á leikskólum sem ekki eru reknir af Garðabæ
Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjastjórnar.
04
Reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum
Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjastjórnar.
05
Bréf Ungmennafélags Íslands varðandi undirbúning og framkvæmd Landsmóts UMFÍ 2017, dags. 10.12.14.
Lagt fram.
06
Bréf SSH varðandi framlengingu samnings um samstarf sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um þjónustu við fatlað fólk, dags. 02.12.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framlengingu á samningi um samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna þjónustu við fatlað fólk.
07
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um húsaleigubætur (réttur námsmanna) 211. mál, dags. 02.12.14.
Lagt fram.
08
Kaupsamningur um viðbótarhúsnæði fyrir bæjarskrifstofur að Garðatorgi 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning um kaup á 200 m2 húsnæði fyrir bæjarskrifstofur samkvæmt heimild í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2014.
09
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli vegna veggs að Þernunesi 6.
Lagður fram.
10
Drög að samkomulagi við Urtustein um endurgreiðslu á gatnagerðargjaldi ofl.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkomulag við Urtustein ehf. um endurgreiðslu gatnagerðargjalda ofl. vegna lóða á miðsvæði Álftanes við Breiðumýri.
11
Bréf lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu varðandi samstarf í málum er varða heimilisofbeldi, dags. 04.12.14.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra og felur honum að ræða við fulltrúa lögreglunnar um kostnað og nánara verklag við framkvæmd verkefnisins$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir, lagði fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Björt framtíð fagnar framtaki LRH og samstarfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í málum er varða heimilisofbeldi. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar, Kópavogs og Reykjavíkurborg hafa nú þegar samþykkt að vinna að hinu nýja verklagi með lögreglu. Ekkert hefur þó heyrst frá Garðabæ og hvetur Björt framtíð bæjaryfirvöld til að taka þátt í þessu þarfa átaki."
13
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi viðtalsaðstöðu fyrir ráðgjafa Vinnumálastofnunar á skrifstofum sveitarfélaga, dags. 02.12.14.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og fagnar auknu samstarfi við Vinnumálastofnun á sviði vinnumiðlunar og úrræða fyrir alla þá sem þurfa aðstoð á vinnumarkaði.
14
Viðaukar 16 - 19 við fjárhagsáætlun 2014
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um viðauka 16 - 19 við fjárhagsáætlun fyrir árið 2014.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2014 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.$line$$line$Viðauki 16 kr. 7.000.000 Laun vegna nýrra kjarasamninga tónlistarkennara$line$Viðauki 17 kr. 35.000.000 Laun vegna langtímaveikinda í grunnskólum $line$Viðauki 18 kr. 5.500.000 Kostnaður vegna frágangs skjala frá Álftanesi$line$Viðauki 19 kr. 19.000.000 Hækkun framlaga til Ísafoldar (tekjur)$line$$line$Ofangreindum viðaukum nr. 16 - 18 skal mætt með lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 47.500.000.$line$$line$Breytingar á fjárhagsáætlun vegna viðauka 1-19 eru eftirfarandi:$line$$line$Handbært fé í árslok samkvæmt fjárhagsáætlun kr. 310.371.000$line$Viðaukar 1-19 kr. -250.699.595$line$Handbært fé í árslok kr. 59.671.405$line$$line$Fjárfesting samkvæmt fjárhagsáætlun kr. 1.310.000.000$line$Viðaukar 1 og 4 kr. 136.100.000$line$$line$Eignarhlutir í félögum (breyting)$line$Viðauki 3 kr. 16.963.776