Sýning á verkum í eigu Garðabæjar
Málsnúmer 1503185
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
5. fundur
Lagt var fram bréf Grósku-samtökum myndlistarmanna og áhugafólks um myndlist í Garðabæ og á Álftanesi, dags. 11. mars 2015, þar sem kynntur er áhugi félagsmanna í Grósku á að fá að sýna verk í eigu Garðabæjar í Gróskusalnum. $line$Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í erindið og samþykkir að fela upplýsinga- og menningarfulltrúa að vinna nánar úr hugmyndinni í samráði við bæjarstjóra með það að leiðarljósi nefndin fái heimild bæjarstjórnar til þess að bjóða íbúum Garðabæjar upp á reglubundnar sýningar frá og með hausti 2015 á listaverkum í eigu bæjarins í samráði við Grósku í Gróskusalnum.$line$