Ljósakur 2-8, ábendingar um óleyfisframkvæmdir.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
44. fundur
Bæjarritari gerði nánari grein fyrir stöðu mála varðandi notkun á geymslurýmum í kjallara húsanna við Ljósakur 2 - 8 og breytingum sem gerðar hafa verið á rýmunum. Lögð var fram að nýju úttekt byggingarfulltrúa frá því 10., 11. og 12. júní sl. ásamt áliti eldvarnareftirlits Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, en þau gögn voru kynnt á fundi bæjarráðs 24. júní sl. $line$$line$Lögð fram eftirfarandi tillaga:$line$$line$"Með vísan til álits eldvarnareftirlits Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, sbr. bókun bæjarráðs dags. 24.6.2014, sem og annarra gagna og upplýsinga sem aflað hefur verið síðar, og varða ófullnægjandi brunavarnir í geymslurýmum að Ljósakri 2-8, telur bæjarráð ljóst að samkvæmt 3. mgr. 55. gr. laga nr. 160/2010 og 3. mgr. 2.9.1 gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012, sé bæjarráði skylt að fyrirskipa eigendum geymslurýmanna að hætta notkun þeirra sem íbúðarhúsnæðis eða annarra vistarvera. Bæjarráð felur byggingarfulltrúa að tilkynna eigendum um lokun húsnæðisins að þessu leyti og gefa þeim jafnframt kost á að koma að athugasemdum. Jafnframt er byggingarfulltrúa falið að fylgja því eftir gagnvart eigendum að notkun geymslurýmanna sem íbúðarhúsnæðis sé hætt. $line$$line$Þá skal eigendum jafnframt tilkynnt, með vísan til 2. mgr. 2.9.1 gr. byggingarreglugerðar, sbr. 2. mgr. 55. gr. laganna, að fyrirhugað sé að krefjast þess að óleyfisframkvæmdirnar verði fjarlægðar, og skal eigendum gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum sínum og andmælum hvað það varðar. $line$$line$Bæjarráð tók einnig fyrir að nýju erindi eigenda Ljósakurs 2-8, dags. 12.5.2014, varðandi beiðni um breytingu á deiliskipulagi. Áður hefur verið fjallað um sambærilegt erindi en afstaða skipulagsnefndar var að fallast ekki erindi um íbúðarými í kjallara hússins. Ekkert kemur fram í tilvísuðu erindi sem gefur tilefni til endurskoðunar þeirrar afstöðu. Bæjarráð samþykkir því að fela bæjarstjóra að svara erindi eigendanna með vísan til fyrri afstöðu skipulagsnefndar."$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.