39 (1659). fundur
39 (1659). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
14.10.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf Vegagerðarinnar varðandi fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018 samkvæmt hafnalögum og lögum um sjóvarnir, dags. 09.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu og úrvinnslu á tækni- og umhverfisviði.
02
Bréf forráðanda landsliðshóps Stjörnunnar varðandi styrk vegna þátttöku í Evrópumóti 2014 í hópfimleikum, dags. 01.10.14.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar og afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs.
03
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi endurnýjun samstarfssamnings, dags. 03.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015 og til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.
04
Samantekt um viðhald og endurnýjun strætóskýla
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir samstarfi við Strætó varðandi talningar á farþegafjölda á strætóbiðstöðvum.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa viðhaldi og endurnýjun strætóskýla til frekari umræðu við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
05
Bréf Sólveigar Kristjánsdóttur ofl. varðandi gangstéttir við Aratún, dags. 26.09.14.
Bæjarráðs samþykkir að vísa bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu við fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
06
Bréf Menntaklifs varðandi verkefnið Velferð barna í Garðabæ, mótt. 01.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015 og til umfjöllunar í mannréttinda- og forvarnanefnd.
07
Bréf Ástráðs,forvarnastarfs læknanema, varðandi styrk til forvarna, dags. 07.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu mannréttinda- og forvarnanefndar.
08
Bókun skólanefndar grunnskóla varðandi viðveru skólahjúkrunarfræðinga í Garðabæ, dags. 17.09.14.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir viðræðum við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins varðandi þjónustu og viðveru skólahjúkrunarfræðings í grunnskólum.
09
Ályktun tónlistarskólakennara varðandi kjaramál tónlistarskólakennara og stjórnenda tónlistarskóla, dags. 09.10.14.
Lögð fram.
10
Umsókn um byggingarleyfi - Hljóðvarnarveggur - Stekkjarflöt 2
Bæjarverkfræðingur kynnti hugmyndir að byggingu hljóðvarnarveggs við lóðarmörk viðkomandi húss að Vífilsstaðavegi, Stekkjarflöt og lóð Flataskóla.$line$$line$Bæjarverkfræðingi falið að vinna áfram að málinu.
11
Umsókn um byggingarleyfi - Lindarflöt 45
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Lindarflöt 45.
12
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi reglugerð um ný umdæmi lögreglu- og sýslumannsembætta, dags. 10.10.14.
Lagt fram.
13
Tilkynning Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi umsóknarfrest vegna nýsköpunarverðlauna
Lögð fram til kynningar.
14
Bréf Jóhönnu V. Jóhannsdóttur varðandi álags vegna stuðningsfulltrúanáms, dags. 06.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til starfskjaranefndar.
15
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015.
Fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og lagði fram endurskoðað vinnuferli við gerð fjárhagsáætlunar. Samkvæmt því er gert ráð fyrir að tillaga að fjárhagsáætlun verði lögð fram í bæjarráði 28. október. Fyrri umræða í bæjarstjórn verður 6. nóvember og síðari umræða 4. desember.$line$$line$Fjármálastjóri lagði jafnframt fram drög að áætlun skattekna fyrir árið 2015.
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1, dags. 02.10.2014.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.