Viðvera skólahjúkrunarfræðinga
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
4. fundur
Fulltrúar frá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins heimsækja fundinn og ræða um störf hjúkrunarfræðinga í grunnskólum.$line$
Helga Sæunn Sveinbjörnsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur hjá Heilsugæslu Garðabæjar og Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir sviðsstjóri hjá Þróunarstofu Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins heimsóttu fundinn og kynntu fyrirkomulag og störf hjúkrunarfræðinga í grunnskólum. $line$$line$Skólanefnd fagnar kynningu heilsugæslunnar og leggur áherslu á að skipulag á viðveru hjúkrunarfræðinga í grunnskólum sé unnið í nánara samstarfi en verið hefur. Áhersla er lögð á að tryggja að þjónusta við grunnskólanemendur í Garðabæ verði eins og best gerist á þjónustusvæði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Jafnframt er lagt til að skólastjórnendur fái sambærilega kynningu á störfum hjúkrunarfræðinga.
Bæjarráð Garðabæjar
02
39 (1659). fundur
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir viðræðum við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins varðandi þjónustu og viðveru skólahjúkrunarfræðings í grunnskólum.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
03
2. fundur
Skipulag og fyrirkomulag skólaheilsugæslu í grunnskólum Garðabæjar
Skólanefnd leggur áherslu á að þjónusta sé skipulögð í samráði við skólayfirvöld/skólanefnd líkt og kveðið er á um í lögum um grunnskóla (91/2008 41gr.) og reglugerð um heilsugæslustöðvar (787/2007 15gr.). $line$$line$Skólanefnd leggur til við bæjarstjórn að tryggt sé að þjónusta og viðvera skólahjúkrunarfræðinga í grunnskólum Garðabæjar verði sambærileg við það sem best gerist hjá nágrannasveitarfélögum okkar.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
04
27. fundur
<DIV><DIV><DIV>Ánægja með að viðvera hjúkrunafræðinga hafi aukist en áhugi enn frekari þjónustu af þeirra hálfu. Skóladeild falið að skoða viðverutíma hjúkrunarfræðinga í einstökum skólum. </DIV></DIV></DIV>