4. fundur
4. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
13.11.2014
Kl. 17:00 - 19:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
- Sveinbjörn M Njálsson - fulltrúi skólastjóra
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Anna Lilja Torfadóttir - varamaður kennara
- Berglind Guðrún Bragadóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1308695
01
Viðvera skólahjúkrunarfræðinga
Fulltrúar frá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins heimsækja fundinn og ræða um störf hjúkrunarfræðinga í grunnskólum.$line$
Helga Sæunn Sveinbjörnsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur hjá Heilsugæslu Garðabæjar og Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir sviðsstjóri hjá Þróunarstofu Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins heimsóttu fundinn og kynntu fyrirkomulag og störf hjúkrunarfræðinga í grunnskólum. $line$$line$Skólanefnd fagnar kynningu heilsugæslunnar og leggur áherslu á að skipulag á viðveru hjúkrunarfræðinga í grunnskólum sé unnið í nánara samstarfi en verið hefur. Áhersla er lögð á að tryggja að þjónusta við grunnskólanemendur í Garðabæ verði eins og best gerist á þjónustusvæði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Jafnframt er lagt til að skólastjórnendur fái sambærilega kynningu á störfum hjúkrunarfræðinga.
Málsnúmer 1409324
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015
Fjárhagsáætlun lögð fram til kynningar og umræðu
Skólanefnd lýsir yfir ánægju með að fá kynningu sem þessa. $line$Í kjölfarið komu fram skiptar skoðanir á niðurgreiðslu sveitarfélagsins á skólamat.
Málsnúmer 1411013
03
Starfsáætlanir grunnskóla 2014-2015
Starfsáætlanir grunnskólanna lagðar fram til kynningar og umræðu$line$
Starfsáætlanir kynntar, skólanefnd lýsir yfir ánægju með metnaðarfullt starf skólanna og þá innsýn í starfið sem skýrslurnar veita.
Málsnúmer 1410441
04
Samstarf um útivistar- og náttúrukennslu
Bæjarráð vísar til skólanefndar erindi um samstarf í útivistar- og náttúrukennslu
Lagt fram til kynningar.$line$Skólanefnd lýst vel á en lætur skólastjórnendum eftir að ákveða hvort og með hvaða hætti þeir nýta sér þetta tilboð.
Málsnúmer 1411114
05
Námskeið í náttúrufræðikennslu fyrir kennara á yngsta og miðstigi
Auglýsing um námskeið og heimasíða námskeiðs kynnt skólanefnd$line$$line$
Skólanefnd lýsir ánægju með fyrirhugað námskeið og hvetur kennara til að taka þátt og efla þannig raungreinakennslu í bænum.