2. fundur
2. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
17.09.2014
Kl. 17:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
- Sveinbjörn M Njálsson - fulltrúi skólastjóra
- Bryndís Stefánsdóttir - fulltrúi kennara
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Kristbjörg Ágústsdóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Dagskrá
01
Ársskýrslur grunnskóla 2013-2014
Ársskýrslur grunnskóla 2013-2014 lagðar fram til kynningar
Ársskýrslur grunnskóla 2013-2014 lagðar fram til kynningar.$line$Rætt um möguleika á að stytta skýrslurnar og tengja við starfsáætlanir skólanna.
02
Grunnstoð Garðabæjar 2014-2015
Kynning á Grunnstoð
Kristbjörg Ágústsdóttir fráfarandi formaður kynnti uppbyggingu og starfsemi Grunnstoða.
03
Hvítbók um umbætur í menntun
Kynning á helstu áhersluþáttum Hvítbókar.$line$$line$Skólanefnd kallar eftir gögnum varðandi læsisstefnu frá grunnskólum Garðabæjar þar sem fram koma viðmið um lágmarkshæfni, aðferðir við mat, skimanir og eftirlit.
04
Samstarf SSH um símenntun grunnskólakennara 2014-2015
Kynning á viðfangsefni vetrarins
Kynning á fyrirhugaðri fræðslu þessa skólaárs sem snýr að bráðgerðum og hæfileikaríkum nemendum. Fulltrúum skólanefndar boðið á fræðslufund í Sjálandsskóla þann 28. nóvember næstkomandi. Skólanefnd lýsir ánægju með verkefnið og samstarf SSH á þessu sviði.
05
Viðvera skólahjúkrunarfræðinga
Skipulag og fyrirkomulag skólaheilsugæslu í grunnskólum Garðabæjar
Skólanefnd leggur áherslu á að þjónusta sé skipulögð í samráði við skólayfirvöld/skólanefnd líkt og kveðið er á um í lögum um grunnskóla (91/2008 41gr.) og reglugerð um heilsugæslustöðvar (787/2007 15gr.). $line$$line$Skólanefnd leggur til við bæjarstjórn að tryggt sé að þjónusta og viðvera skólahjúkrunarfræðinga í grunnskólum Garðabæjar verði sambærileg við það sem best gerist hjá nágrannasveitarfélögum okkar.
06
Samstarfssamningur v Comeniusar styrks til verkefnisins "Accelerting learning and achievement for all groups of learners"
Kynning á stöðu verkefnisins
Kynning á verkefninu, stöðu þess og framtíðarsýn.$line$Skólanefnd lýsir ánægju með verkefnið og hvetur til áframhaldandi samstarfs.