Beint í efni

Samantekt um viðhald og endurnýjun strætóskýla

Málsnúmer 1402174

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

39 (1659). fundur

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir samstarfi við Strætó varðandi talningar á farþegafjölda á strætóbiðstöðvum.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa viðhaldi og endurnýjun strætóskýla til frekari umræðu við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Bæjarráð Garðabæjar

02

6. fundur

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir samstarfi við Strætó vegna ábendinga og athugasemda við leiðarkerfið. $line$$line$Varðandi staðsetningu skýla kom fram við Hafnarfjarðarveg eru skýli við allar stoppistöðvar sem rekin eru af auglýsingastofu. Áætlanir eru um að fjölga skýlum á öðrum leiðum og þeir staðir sem þykja helst koma til greina í því sambandi eru: Sjálandsskóli, Suðurnesvegur, Norðurnesvegur, Vífilsstaðir, Kauptún, Miðbær, Molduhraun og Prýðishverfi.