3. fundur
3. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
21.10.2014
Kl. 17:00 - 19:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigurður Bjarnason - aðalmaður
- Rósanna Andrésdóttir - aðalmaður
- Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
- Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1311486
01
Ungt fólk 2013
Skýrslan um Ungt fólk 2013 í Garðabæ var rædd í tengslum við forvarnir.
Málsnúmer 1409426
02
Forvarnastefna
Drög að forvarnarstefnu Garðabæjar 2014
Forvarnarstefnan var rædd og mögulegar aðgerðir. ÍTG ítrekar bann við allri tóbaks- og vímuefnanotkun í og við íþróttamannvirki Garðabæjar.
Málsnúmer 1410114
03
Beiðni um styrk vegna þátttöku landsliðsfólks Stjörnunnar í Evrópumóti 2014 í hópfimleikum
ÍTG samþykkir að veita viðkomandi einstaklingum ferðastyrk að upphæð 20.000,- kr vegna ferðar erlendis í tengslum við þetta landsliðsverkefni. Hver einstaklingur þarf að sækja um og staðfesta að ferðin hafi verið farin með framvísun farseðils.
Málsnúmer 1410107
04
Endurnýjun samstarfssamnings
Komið er að endurnýjun samstarfssamnings við Stjörnuna.
SB lýsti sig vanhæfan til að taka ákvarðanir í þessu máli. Fjallað var um ágæta kynningu sem fram fór hjá Stjörnunni og fagnað þeim áherslum Stjörnunnar á að styrkja innra starf félagsins.
Málsnúmer 1410280
05
Ályktun félagsfundar handknattleiksdeildar
Óskað er eftir að bæjarstjórn skipi starfshóp til að greina þarfir handknattleiksdeildar Stjörnunnar til næstu 5 ára.
ÍTG felur íþróttafulltrúa Garðabæjar að taka saman lista um nauðsynlegar úrbætur sem fara þarf í á Mýrinni í samvinnu við handboltadeild Stjörnunnar til að skapa þar sem bestar aðstæður fyrir handknattleik. Framkvæmdum verði forgangsraðað og gróflega kostnaðargreindar og tillögum skilað til bæjarstjóra.
Málsnúmer 1402317
06
Önnur mál 2014
a. starfsemi Garðalundar$line$b. aðstaða golfklúbba og leiga á landi undir golfvelli$line$c. ....$line$.....
a. Rætt var um starfsemi Garðalundar og annarra félagsmiðstöðva unglinga í Garðabæ. Fram kom að bæta þarf við fjárveitingar í innra starf og endurnýjun tækja og búnaðar. Halda þarf uppi því metnaðarfulla starfi sem Garðabær hefur verið þekktur fyrir.$line$b. Rætt var um óskir golfklúbbsins Odds um þátttöku bæjarins í leigu á aðstöðu fyrir klúbbinn. ÍTG telur sig ekki geta orðið við erindinu og vísar því til ákvörðunar bæjarstjórnar.