Beint í efni

8. fundur

25.03.2015
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

8. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

25.03.2015

Kl. 17:00 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
  • Rósanna Andrésdóttir - aðalmaður
  • Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1502447

01

Bygging fjölnota íþróttahúss

Umræður urðu um staðsetningu fjölnota íþróttahúss sem til stendur að byggja í Garðabæ.

Málsnúmer 1503181

02

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur til Hjördísar Eiríksdóttur kr. 20.000,- vegan A-landsliðs í blaki til Ítalíu 1.-6. apríl 2015

Samþykktur ferðastyrkur til Hjördísar Eiríksdóttur kr. 20.000,- vegna A-landsliðs í blaki til Ítalíu 1.-6. apríl 2015.

Málsnúmer 1502419

03

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur til Helgu Maríu Vilhjálmsdóttur kr. 20.000,- vegna HM á skíðum í USA 3. feb 2015.

Samþykktur ferðastyrkur til Helgu Maríu Vilhjálmsdóttur kr. 20.000,- vegna HM á skíðum í USA 3. feb 2015.

Málsnúmer 1502418

04

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur til Helgu Maríu Vilhjálmsdóttur kr. 20.000,- vegna HM unglinga í Noregi 5.-14. mars 2015.

Samþykktur ferðastyrkur til Helgu Maríu Vilhjálmsdóttur kr. 20.000,- vegna HM unglinga í Noregi 5.-14. mars 2015.

Málsnúmer 1503085

05

Samræming skóla og frístunda

Til umræðu eru hugmyndir um að gefa svigrúm í tímatöflu grunnskólanna fyrir frjálst val í frístundastarfi með samvinnu við þriðja geirann.

ÍTG hvetur til þess að unnið verði af hálfu Garðabæjar að því að gefa svigrúm á starfsdegi grunnskólanna í Garðabæ til að koma fyrir hluta af frístundastarfi yngstu barnanna líkt og þekkist á Ísafirði í Borgarbyggð og á fleiri stöðum. Í þeirri vinnu verði gengið út frá þörfum barnanna. Slík samræming skóla og frístundastarfs er í anda stefnu Garðabæjar og aðalnámskrár grunnskóla.

Málsnúmer 1502323

06

Önnur mál ÍTG 2015

a) ....$line$b) ....$line$c) ....

Rætt var um með hvaða hætti hægt væri að minnast þess að 100 ár eru frá því konur á Íslandi fengu kosningarétt.