Beint í efni

Samræming skóla og frístunda

Málsnúmer 1503085

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

8. fundur

Til umræðu eru hugmyndir um að gefa svigrúm í tímatöflu grunnskólanna fyrir frjálst val í frístundastarfi með samvinnu við þriðja geirann.

ÍTG hvetur til þess að unnið verði af hálfu Garðabæjar að því að gefa svigrúm á starfsdegi grunnskólanna í Garðabæ til að koma fyrir hluta af frístundastarfi yngstu barnanna líkt og þekkist á Ísafirði í Borgarbyggð og á fleiri stöðum. Í þeirri vinnu verði gengið út frá þörfum barnanna. Slík samræming skóla og frístundastarfs er í anda stefnu Garðabæjar og aðalnámskrár grunnskóla.