23. (1691). fundur
23. (1691). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
16.06.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - varamaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1501114
01
Rekstrarúttekt KPMG - fjárhagsleg greining, (gestir frá KPMG).
Á fund bæjarráðs mættu Svanbjörn Thoroddsen og Oddur Jónsson frá KPMG og gerðu nánari grein fyrir vinnu við úttekt á rekstri sveitarfélagsins og ábendingum um markmiðssetningu í rekstrinum til framtíðar.$line$$line$Bæjarráð lýsir ánægju með niðurstöður úttektarinnar en þar kemur fram að rekstur Garðabæjar er í öllum meginatriðum góður og einkennist af góðri afkomu og stöðugleika. $line$$line$Fram kom að hafin er vinna á grundvelli greinargerðarinnar við smíði mælaborðs til bæta upplýsingagjöf til stjórnenda með það að markmiði að tyggja betri heildarsýn um rekstur deilda og málaflokka.$line$$line$Bæjarráð vísar greinargerð um rekstrarúttekt til frekari umræðu og aðgerða í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 (2016-2019).
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1409324
02
Staða framkvæmda samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir helstu framkvæmdum samkvæmt fjárhagsáætlun og lýsti nánar stöðu þeirra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1506134
03
Bréf íbúa við Kjarrmóa 33 um þátttöku í kostnaði við girðingu, dags. 11.06.15.
Bæjarráð hafnar erindi bréfritara um þátttöku í kostnaði við uppsetningu girðingar enda verður ekki séð að bærinn hafi skyldur eða hagsmuni að aðkoma að málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1409425
04
Jafnréttisáætlun Garðabæjar 2014 - 2018.
Bæjarráð vísar tillögu mannréttinda- og forvarnanefndar að endurskoðun jafnréttisáætlunar Garðabæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1504183
05
Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi styrk vegna framkvæmda við Hlíðarveg í Heiðmörk, dags. 10.06.15.
Lögð fram afgreiðsla umhverfisnefndar þar sem gerð er grein fyrir samþykkt Vegagerðarinnar um að veita styrk að fjárhæð kr. 2.500.000 til framkvæmda við bílastæði við enda Vífilsstaðahlíðar.$line$$line$Bæjarráð telur rétt að taka fram í þessu sambandi að ekki liggur fyrir samkomulag við Vegagerðina um viðunandi skil á Heiðmerkurvegi í tengslum við breytingar á skráningu vega samkvæmt vegalögum nr. 80/2007.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1506109
06
Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi tilefni þess að 35 ár eru liðin frá kjöri Vigdísar Finnbogadóttur til forseta.
Lögð fram afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi samstarf skógræktarfélaga um viðburð í tilefni þess að 35 ár eru liðin frá því að frú Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1410202
07
Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi merkingu hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu fyrir ferðamenn
Lögð fram afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi þátttöku Garðabæjar í samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um gerð þemakorts yfir áhugaverðar hjólaleiðir fyrir ferðamenn.