Beint í efni

Jafnréttisáætlun Garðabæjar 2014-2018

Málsnúmer 1409425

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. fundur

Sigríður Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lýsti yfir ánægju með jafnréttisáætlun 2014 - 2018.
Sigríður Hulda lagði fram eftirfarandi tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna til Alþingis að eingöngu kvenbæjarfulltrúar sitji og stýri fyrsta fundi bæjarstjórnar Garðabæjar eftir sumarleyfi, sem fyrirhugaður er fimmtudaginn 20. ágúst 2015.
Bæjarstjórn samþykkir að til fundarins verði boðið stúlkum í ungmennaráði og öllum stúlkum í Garðabæ sem luku grunnskólanámi síðastliðið vor. Greinargerð:Á morgun 19. júní 2015 er þess minnst að 100 ár eru liðin frá því að konur á Íslandi fengu kosningarétt til Alþingis. Mikilvægt er að minnast þessa atburðar sem hafði mikla þýðingu varðandi jafnrétti kynjanna og jafnframt að láta hann vera hvatningu til að auka lýðræðislega umræðu og þátttöku ungs fólks í almennum kosningum.Bæjarstjórn Garðabæjar leggur sitt að mörkum með því að bjóða ungum stúlkum í Garðabæ til fundarins til að hvetja þær og allt ungt fólk til virkrar þátttöku í samfélaginu með því meðal annars að nýta ávallt kosningarétt sinn.Við boðun fundar bæjarstjórnar 20. ágúst n.k. skal boða allar konur sem setið hafa fundi í hreppsnefnd eða bæjarstjórn Garðabæjar.
Til máls um jafnréttisáætlun og framlagða tillögu tóku, Jóna Sæmundsdóttir, Guðrún Elín Herbertsdóttir og Steinþór Einarsson.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu mannréttinda- og forvarnanefndar um jafnréttisáætlun Garðabæjar fyrir 2014 - 2018.
Framkomin tillaga samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

02

23. (1691). fundur

Bæjarráð vísar tillögu mannréttinda- og forvarnanefndar að endurskoðun jafnréttisáætlunar Garðabæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl