10. fundur
10. fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
18.06.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - varamaður
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður. [line][line]Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði. [line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 4. júní 2015 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 1506007F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 9/6 ´15.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., minnisblað íþróttafulltrúa um notkun á fjölnota íþróttahúsi.
Fundargerðin sem er 6 tl. er samþykkt.
Málsnúmer 1506017F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 16/6 ´15.
Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., rekstrarúttekt KPMG og fjallaði sérstaklega um hugmyndir um auðlindarentu til A-hluta vegna reksturs samveitna.
Umræða var um 1. tl., rekstrarúttekt KPMG og til máls tóku Steinþór Einarsson, Sigurður Guðmundsson, Gunnar Valur Gíslason, Halldór Jörgensson, Ingvar Arnarson og Sturla Þorsteinsson.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 7. tl., afgreiðslu umhverfisnefndar varðandi samstarfsverkefni um merkingu hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu.
Fundargerðin sem er 7 tl. er samþykkt.
Málsnúmer 1502018F
03
Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ frá 16/2 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1504006F
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 15/4 ´15.
Ingvar Arnarsson, ræddi 1. tl., aðsóknartölur í sundlaugar Garðabæjar og spurði um hvaða aðgerðir séu fyrirhugaðar til að auka aðsókn í sundlaugarnar á sama tíma og upplýst er um að almenn aðsókn í Ásgarði þrengir að sundkennslu skólanna.
Steinþór Einarsson, ræddi 7. tl., upplýsingar um nýtingu hvatapeninga.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., upplýsingar um hvatapeninga.
Sturla Þorsteinson, ræddi 1. tl., aðsóknartölur í sundlaugar Garðabæjar.
Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., aðsóknartölur í sundlaugar Garðabæjar.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., aðsóknartölur í sundlaugar Garðabæjar.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1505025F
05
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 3/6 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1506005F
06
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 8/6 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1506006F
07
Fundargerð umhverfisnefndar frá 10/6 ´15.
Ingvar Arnarsson, ræddi 7. tl., Vífilsstaðavatn og fuglar og spurði í því sambandi hvort einhverjar aðgerðir væru í gangi til að eyða ref á svæðinu.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi sama mál og upplýsti um að á vegum nefndarinnar séu engar aðgerðir í gangi hvað þetta varðar. Jóna ræddi einnig 9. tl., mengunarmælingar við strönd og læki og sagði frá því að niðurstöður hafi aldrei verið jafn jákvæðar. Þá ræddi Jóna 11. tl., gróðursetningu til að minnast þess að 35 ár eru liðin frá því að frú Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti.
Halldór Jörgensson, ræddi 9. tl., mengunarmælingar við strönd og læki og fagnaði betri niðurstöðum.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 7. tl., Vífilsstaðavatn og fuglar og nefndi í því sambandi viðkomu margæsarinnar á Álftanesi á leið sinni frá Skotlandi til Kanada. Gunnar sagði frá rannsóknum sem gerðar hafa verið á hegðun margæsanna sem sjálfsagt væri að nota sem kennsluefni í grunnskólum bæjarins. Þá ræddi Gunnar Valur 11. tl., gróðursetningu til að minnast þess að 35 ár eru liðin frá því að frú Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 7. tl., Vífilsstaðavatn og fuglar og nefndi í því sambandi nauðsyn á aðgerðum til að vernda fugla við Álftanesveg á varptíma.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1505023F
08
Fundargerð fjölskylduráðs frá 11/6 ´15.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 7. tl., framkvæmdaráætlun í barnaverndarmálum.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1506010F
09
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 11/6 ´15.
Halldór Jörgensson, ræddi 4. tl., stöðu tölvumála í grunnskólum Garðabæjar.
Ingvar Arnarsson, ræddi 1. tl., útboð skólamálsverða, 2. tl. samþykkt stjórnar SSH vegna kjarasamninga grunnskóla, 5. tl., ímyndarmál kennara, 6. tl., yfirlit málafokka skólanefndar grunnskóla starfsárið 2014-2015 og spurði nánar um umræðu um málin í skólanefnd.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi sömu mál og gerði nánari grein fyrir umræðu í skólanefnd um einstök mál.
Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., útboð skólamálsverða og 5. tl., ímyndarmál kennara.
Ingvar Arnarson, ræddi sömu mál að nýju og þakkaði góð svör. Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1506002F
10
Fundargerð skólanefndar tónlistarskólans frá 4/6 ´15.
Ingvar Arnarsson, ræddi 4. tl., samstarf Tónlistarskóla Garðabæjar við framhaldsskóla og þá sérstaklega samstarf við Fjölbrautaskólann í Garðabæ.
Steinþór Einarsson, ræddi 4. tl. sama mál og gerði grein fyrir umræðu um málið í skólanefnd Fjölbrautaskóla Garðabæjar.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl. foreldra- og þjónustukannanir og 3. tl., skólastarf tónlistarskóla.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1501125
11
Fundargerð Sorpu frá 12/6 ´15.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 3. tl., endurvinnslustöðina á Dalsvegi og 5. tl. þjónustu grenndargáma.
Jóna Sæmundsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Halldór Jörgensson og Steinþór Einarsson ræddu sömu mál.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1506067
12
Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 29/5 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1503137
13
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 1/6 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1503138
14
Fundargerð SSH frá 1/6 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1502027
15
Fundargerðir Strætó bs. frá 29/5 ´15 og 12/6 ´15.
Steinþór Einarson ræddi 2. tl., fg. 29/5 ´15 skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar.$line$$line$Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi sama mál. Gunnar Valur ræddi einnig 6. tl., ráðningu sviðsstjóra akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og 7. tl., fg 12/6 15, leiðarkerfi 2016.$line$$line$Halldór Jörgensson ræddi 7. tl., fg. 12/6 ´15, leiðarkerfi 2016.$line$$line$Fundargerðirnar lagðar fram.$line$
Málsnúmer 1409425
16
Jafnréttisáætlun Garðabæjar 2014-2018
Sigríður Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lýsti yfir ánægju með jafnréttisáætlun 2014 - 2018.
Sigríður Hulda lagði fram eftirfarandi tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna til Alþingis að eingöngu kvenbæjarfulltrúar sitji og stýri fyrsta fundi bæjarstjórnar Garðabæjar eftir sumarleyfi, sem fyrirhugaður er fimmtudaginn 20. ágúst 2015.
Bæjarstjórn samþykkir að til fundarins verði boðið stúlkum í ungmennaráði og öllum stúlkum í Garðabæ sem luku grunnskólanámi síðastliðið vor. Greinargerð:Á morgun 19. júní 2015 er þess minnst að 100 ár eru liðin frá því að konur á Íslandi fengu kosningarétt til Alþingis. Mikilvægt er að minnast þessa atburðar sem hafði mikla þýðingu varðandi jafnrétti kynjanna og jafnframt að láta hann vera hvatningu til að auka lýðræðislega umræðu og þátttöku ungs fólks í almennum kosningum.Bæjarstjórn Garðabæjar leggur sitt að mörkum með því að bjóða ungum stúlkum í Garðabæ til fundarins til að hvetja þær og allt ungt fólk til virkrar þátttöku í samfélaginu með því meðal annars að nýta ávallt kosningarétt sinn.Við boðun fundar bæjarstjórnar 20. ágúst n.k. skal boða allar konur sem setið hafa fundi í hreppsnefnd eða bæjarstjórn Garðabæjar.
Til máls um jafnréttisáætlun og framlagða tillögu tóku, Jóna Sæmundsdóttir, Guðrún Elín Herbertsdóttir og Steinþór Einarsson.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu mannréttinda- og forvarnanefndar um jafnréttisáætlun Garðabæjar fyrir 2014 - 2018.
Framkomin tillaga samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1506161
17
Tillaga um skipun afmælisnefndar í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar á árinu 2016
Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að skipa nefnd í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar á árinu 2016. Nefndina skulu skipa formaður bæjarráðs, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, bæjarstjóri, formaður menningar- og safnanefndar og þrír fulltrúar tilnefndir af minnihluta bæjarstjórnar. Atkvæði formanns skal hafa aukið vægi ef atkvæði falla jafnt.Tilnefningar á fulltrúum minnihluta skulu liggja fyrir á næsta fundi bæjarráðs ásamt drögum að erindisbréfi fyrir nefndina.Greinargerð:Á fundi hreppsnefndar Garðahrepps sem haldinn var 6. nóvember 1975 samþykkti þáverandi hreppsnefnd að óska eftir því við þingmenn Reykjaneskjördæmis að lagt verði fram frumvarp til laga um kaupstaðarréttindi fyrir sveitarfélagið. Samþykktinni var fylgt eftir með bréfi, dags. 12. nóvember 1975. Frumvarp til laga var lagt fram á Alþingi daginn eftir eða 13. nóvember 1975 og var Ólafur G. Einarsson, flutningsmaður þess. Frumvarpið varð síðan afgreitt sem lög frá Alþingi 12. desember 1975 og hafði þá farið bæði fyrir neðri og efri deild þingsins. Lögin tóku gildi 1. janúar 1976.Í upphafi árs 2016 verða því liðinn 40 ár frá því Garðabær varð sérstakur kaupstaður og þykir ástæða til að minnast þess með viðeigandi viðburðum á árinu 2016.Hlutverk afmælisnefndarinnar er að gera tillögur til bæjarráðs um einstaka viðburði og dagskrá hátíðarhalda. Við samþykkt fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 skal tryggð hæfileg fjárveiting til að standa undir viðburðum að þessu tilefni.
Framkomin tillaga samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1506160
18
Tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar 2015
Með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 8. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 samþykkir bæjarstjórn að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og til 20. ágúst 2015. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 18. ágúst 2015. Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga.