Beint í efni

Fundargerð umhverfisnefndar frá 10/6 ´15.

Málsnúmer 1506006F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. fundur

Ingvar Arnarsson, ræddi 7. tl., Vífilsstaðavatn og fuglar og spurði í því sambandi hvort einhverjar aðgerðir væru í gangi til að eyða ref á svæðinu.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi sama mál og upplýsti um að á vegum nefndarinnar séu engar aðgerðir í gangi hvað þetta varðar. Jóna ræddi einnig 9. tl., mengunarmælingar við strönd og læki og sagði frá því að niðurstöður hafi aldrei verið jafn jákvæðar. Þá ræddi Jóna 11. tl., gróðursetningu til að minnast þess að 35 ár eru liðin frá því að frú Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti.
Halldór Jörgensson, ræddi 9. tl., mengunarmælingar við strönd og læki og fagnaði betri niðurstöðum.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 7. tl., Vífilsstaðavatn og fuglar og nefndi í því sambandi viðkomu margæsarinnar á Álftanesi á leið sinni frá Skotlandi til Kanada. Gunnar sagði frá rannsóknum sem gerðar hafa verið á hegðun margæsanna sem sjálfsagt væri að nota sem kennsluefni í grunnskólum bæjarins. Þá ræddi Gunnar Valur 11. tl., gróðursetningu til að minnast þess að 35 ár eru liðin frá því að frú Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 7. tl., Vífilsstaðavatn og fuglar og nefndi í því sambandi nauðsyn á aðgerðum til að vernda fugla við Álftanesveg á varptíma.
Fundargerðin lögð fram.