Tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar 2015
Málsnúmer 1506160
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
10. fundur
Með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 8. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 samþykkir bæjarstjórn að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og til 20. ágúst 2015. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 18. ágúst 2015. Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga.