Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 16/6 ´15.

Málsnúmer 1506017F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. fundur

Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., rekstrarúttekt KPMG og fjallaði sérstaklega um hugmyndir um auðlindarentu til A-hluta vegna reksturs samveitna.
Umræða var um 1. tl., rekstrarúttekt KPMG og til máls tóku Steinþór Einarsson, Sigurður Guðmundsson, Gunnar Valur Gíslason, Halldór Jörgensson, Ingvar Arnarson og Sturla Þorsteinsson.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 7. tl., afgreiðslu umhverfisnefndar varðandi samstarfsverkefni um merkingu hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu.
Fundargerðin sem er 7 tl. er samþykkt.