Beint í efni

3. fundur

19.02.2015
Bæjarstjórn Garðabæjar

3. fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

19.02.2015

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sturla D Þorsteinsson - forseti bæjarstjórnar
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Viktoría Jensdóttir - varamaður
  • Kristinn Guðlaugsson - varamaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Dagskrá

Málsnúmer 1502011F

01

Fundagerð bæjarráðs frá 10/2 ´15.

Til sérstakrar afgreiðslu:

Steinþór Einarsson ræddi 1. - 5. tl. erindi Stjörnunnar og óskaði eftir upplýsingum frá bæjarstjóra um stöðu einstakra mála.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi sömu mál og gerði grein fyrir stöðu einstakra erinda. Bæjarstjóri ræddi einnig 1. tl., heimild til lántöku og gerði grein fyrir tillögu um hækkun á lánsfjárhæð.$line$$line$Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1502016F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 17/2 ´15.

Til sérstakrar afgreiðslu:

María Grétarsdóttir, ræddi 11. tl., bréf Fólksins í bænum vegna ummæla bæjarstjóra á málþingi um íbúalýðræði og lagði fram eftirfarandi bókun.$line$$line$"Í siðareglum fyrir kjörna fulltrúa í Garðabæ er tekið fram að bæjarfulltrúar skuli í störfum sínum koma fram af háttvísi. Þeim beri að forðast að hafast nokkuð að sem getur varpað rýrð á störf þeirra eða Garðabæ. Kjörnum fulltrúum beri að starfa af kostgæfni, fyrir opnum tjöldum og vera reiðubúnir að rökstyðja ákvarðanir sínar. Kjörnir fulltrúar skuli sýna störfum og réttindum annarra kjörinna fulltrúa Garðabæjar og starfsmanna bæjarins virðingu. $line$$line$Bæjarstjóri hefur vikist frá að rökstyðja orð sín á málþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stofnun stjórnsýslufræða. Fólkið í bænum stendur því frammi fyrir því nú að ákveða hvort vísa skuli málinu til siðanefndar sambandsins til að fá úr því skorið hvort bæjarstjóri hafi komið fram af háttvísi þegar hann lýsti skoðun sinni og forsendum þeirrar ákvörðunar að hafna tillögu um áheyrnarfulltrúa í nefndum í Garðabæ."$line$$line$$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi 4. tl., forvarnarstefnu Garðabæjar, spurði um innleiðingu á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna samkvæmt stefnunni. Þá ræddi Steinþór 10. tl., svör við fyrirspurnum um stöðu innflytjenda í Garðabæ, 17. tl., yfirlit yfir þróun fjárhagsaðstoðar. Steinþór óskaði eftir upplýsingum um hvernig unnið er með umsóknir um fjárhagsaðstoð og hvaða úrræði standi bótaþegum til boða.$line$$line$$line$$line$Fundargerðin sem er 19 tl., er samþykkt samhljóða.$line$$line$$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., forvarnarstefnu Garðabæjar, 11. tl., bréf Fólksins í bænum vegna ummæla bæjarstjóra á málþingi um íbúalýðræði.$line$$line$$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 4. tl., forvarnastefnu Garðabæjar og 17. tl., yfirlit yfir þróun fjárhagsaðstoðar. Bæjarstjóri svaraði fyrirspurnum og gerði nánari grein fyrir málunum. $line$$line$$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 4. tl., forvarnarstefnu og innleiðingu barnasáttmála og 17. tl. yfirlit yfir þróun fjárhagsaðstoðar.

Málsnúmer 1502001F

03

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 3/2 ´15.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., þróunarsjóð og sagði frá því að auglýst hafi verið eftir umsóknum í sjóðinn. Sigríður Hulda gerði nánar grein fyrir helstu áhersluatriðum sem koma til skoðunar við úthlutun úr sjóðnum.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi sama mál og tók undir þætti er snúa að skoðanakönnum um gæði á skólastarfi.$line$$line$Viktoría Jensdóttir, ræddi sama mál og sagði frá samþykkt leikskólanefndar um reglur fyrir þróunarsjóð leikskóla. $line$$line$Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501050F

04

Fundargerð umhverfisnefndar frá 4/2 ´15.

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., trjágróður í Garðabæ og lýsti ánægju með verkefnið. Þá ræddi Steinþór 4. tl., fræðsluskilti.$line$$line$Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., trjágróður í Garðabæ og sagði nánar frá framkvæmd málsins hjá umhverfisstjóra og garðyrkjustjóra við að leiðbeina og aðstoða fólk varðandi trjágróður í görðum og á lóðarmörkum. Þá ræddi Jóna 4. tl., fræðsluskilti og 6. tl., vöktunaráætlun Vífilsstaðavatns og Urriðavatns.$line$$line$Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.$line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi málefni umhverfisnefndar lýsti ánægju með störf hennar. Halldór hvatti nefndina áfram til góðra verka$line$$line$Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1502086

05

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 2/2 ´15.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi starfsleyfi fyrir gististað að Sandakri 12.$line$$line$Steinþór Einarsson og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddu sama mál.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501125

06

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 6/2 ´15.

Steinþór Einarsson ræddi 1. - 3. tl. niðurstöður kærunefnda og héraðsdóms varðandi málefni Sorpu bs.$line$$line$Jóna Sæmundsdóttir, ræddi sömu mál.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1502027

07

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 13/2 og 16/2 ´15.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., fg. 13/2, gjaldskrámál, 5. tl., fg. 13/2, akstursþjónustu fyrir fatlað fólk, 6. tl., fg. 13/2, áhættumat vegna fyrirhugaðs akstursútboðs, 1. tl., fg. 16/2 stöðu dómsmála, og 4. tl., fg. 16/2 Strætó Appið$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir, þakkaði bæjarfulltrúa Gunnari Val fyrir greinargóðar upplýsingar um stöðu mála.$line$$line$Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 1409426

08

Forvarnastefna Garðabæjar 2014-2018.

Til máls tóku Sigríður Hulda Jónsdóttir, Jóna Sæmundsdóttir og Gunnar Einarsson$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir forvarnarstefnu Garðabæjar 2014 - 2018.

Málsnúmer 1502270

09

Kosning aðalmanns í skipulagsnefnd.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir tillögum Bjartrar framtíðar um tilnefningu í nefndir sbr. liðir 9 - 12 á dagskrá fundarins.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Súsönnu Vilhjálmsdóttur, Faxatúni 23, sem aðalfulltrúa í skipulagsnefnd í stað Auðar Hallgrímsdóttur, sem óskað hefur eftir lausn frá störfum.

Málsnúmer 1502271

10

Kosning aðal- og varamanns í umhverfisnefnd.

Bæjastjórn samþykkir að kjósa Erling Jóhannesson, Holtsbúð 21, sem aðalmann í umhverfisnefnd í stað Súsönnu Vilhjálmsdóttur og Guðrúnu Elínu Herbertsdóttur, Birkiholti 6, sem varamann í stað Sigríðar Bylgju Sigurjónsdóttur.

Málsnúmer 1502272

11

Kosning varamanns í fjölskylduráð.

Frestað.

Málsnúmer 1502273

12

Kosning aðal- og varamanns á Landsþing Sambands ísl. sveitarfélaga.

Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Halldór Jörgensson, bæjarfulltrúa, sem aðalmann á Landsþing sveitarfélaga í stað Auðar Hallgrímsdóttur sem óskað hefur eftir lausn frá störfum.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Guðrúnu Elínu Herbertsdóttir, bæjarfulltrúa, sem varamann á Landsþing sveitarfélaga í stað Halldórs Jörgenssonar og Sturlu Þorsteinsson, bæjarfulltrúa, í stað Almars Guðmundssonar