Fundargerð bæjarráðs frá 17/2 ´15.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
3. fundur
Til sérstakrar afgreiðslu:
María Grétarsdóttir, ræddi 11. tl., bréf Fólksins í bænum vegna ummæla bæjarstjóra á málþingi um íbúalýðræði og lagði fram eftirfarandi bókun.$line$$line$"Í siðareglum fyrir kjörna fulltrúa í Garðabæ er tekið fram að bæjarfulltrúar skuli í störfum sínum koma fram af háttvísi. Þeim beri að forðast að hafast nokkuð að sem getur varpað rýrð á störf þeirra eða Garðabæ. Kjörnum fulltrúum beri að starfa af kostgæfni, fyrir opnum tjöldum og vera reiðubúnir að rökstyðja ákvarðanir sínar. Kjörnir fulltrúar skuli sýna störfum og réttindum annarra kjörinna fulltrúa Garðabæjar og starfsmanna bæjarins virðingu. $line$$line$Bæjarstjóri hefur vikist frá að rökstyðja orð sín á málþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stofnun stjórnsýslufræða. Fólkið í bænum stendur því frammi fyrir því nú að ákveða hvort vísa skuli málinu til siðanefndar sambandsins til að fá úr því skorið hvort bæjarstjóri hafi komið fram af háttvísi þegar hann lýsti skoðun sinni og forsendum þeirrar ákvörðunar að hafna tillögu um áheyrnarfulltrúa í nefndum í Garðabæ."$line$$line$$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi 4. tl., forvarnarstefnu Garðabæjar, spurði um innleiðingu á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna samkvæmt stefnunni. Þá ræddi Steinþór 10. tl., svör við fyrirspurnum um stöðu innflytjenda í Garðabæ, 17. tl., yfirlit yfir þróun fjárhagsaðstoðar. Steinþór óskaði eftir upplýsingum um hvernig unnið er með umsóknir um fjárhagsaðstoð og hvaða úrræði standi bótaþegum til boða.$line$$line$$line$$line$Fundargerðin sem er 19 tl., er samþykkt samhljóða.$line$$line$$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., forvarnarstefnu Garðabæjar, 11. tl., bréf Fólksins í bænum vegna ummæla bæjarstjóra á málþingi um íbúalýðræði.$line$$line$$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 4. tl., forvarnastefnu Garðabæjar og 17. tl., yfirlit yfir þróun fjárhagsaðstoðar. Bæjarstjóri svaraði fyrirspurnum og gerði nánari grein fyrir málunum. $line$$line$$line$$line$Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 4. tl., forvarnarstefnu og innleiðingu barnasáttmála og 17. tl. yfirlit yfir þróun fjárhagsaðstoðar.