8. fundur
8. fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
21.05.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sturla D Þorsteinsson - forseti bæjarstjórnar
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Kristinn Guðlaugsson - varamaður
- Sigríður Björk Gunnarsdóttir - varamaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
Ritari
- Guðjón Friðriksson
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 12/5 ´15.
Til sérstakrar afgreiðslu:
Halldór Jörgensson, ræddi 6. tl., samstarfsamninga við félög og fjallaði sérstaklega um styrkveitingar til Garða- og Bessastaðasóknar.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri og Gunnar Valur Gíslason, ræddu sömu mál.$line$$line$Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða.
1.7 - 1410283 - Samstarfsamningar við frjáls félög í Garðabæ.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum samninga um rekstrarframlög við eftirfarandi félög til að gilda fyrir árin 2015 - 2017. María Grétarsdóttir situr hjá.$line$$line$Garðasókn v/æskulýðsstarfs Árlegt framlag kr. 3.000.000$line$Bessastaðasókn v/æskulýðsstarf Árlegt framlag kr. 2.500.000$line$Hestamannafélagið Sprettur Árlegt framlag kr. 6.000.000$line$Taflfélag Garðabæjar Árlegt framlag kr. 600.000$line$Hestamannafélagið Sóti Árlegt framlag kr. 700.000
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 19/5 ´15.
Til sérstakrar afgreiðslu:
Forseti vakti athygli á leiðréttingu á fundargerðinni varðandi bókun undir dagskrárlið 9, afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi stuðning við hádegistónleikaraðir í Garðabæ sumarið 2015.$line$$line$Sturla Þorsteinsson, vék sæti við umræðu og afgreiðslu um 14. tl., og tók Gunnar Valur Gíslason, varaforseti við stjórn fundarins.$line$$line$Forseti tók aftur við fundarstjórn.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi framlagða bókun og fjallaði í því sambandi almennt um lengd bókana.$line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi 13. tl., samstarfsyfirlýsingu um mál er varða heimilisofbeldi og lýsti ánægju með þátttöku Garðabæjar í verkefninu.$line$$line$Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 9. tl., afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi stuðning við umsókn um hádegistónleikaraðir í Garðabæ og 10. tl., afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi umsögn um tillögu um minjaskála við Hofsstaði.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 10. tl. afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi umsögn um tillögu um minjaskála við Hofsstaði og gerði nánari grein fyrir samþykkt nefndarinnar um að styðja skipun starfshóps til að vinna frekar að málinu.$line$$line$Fundargerðin sem er 19 tl. er samþykkt samhljóða.
2.16 - 1503229 - Umsókn um byggingarleyfi - Haukanes 28
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna endurnýjunar á klæðningu og innra skipulagi einbýlishússins við Haukanes 28.
Fylgiskjöl
2.17 - 1504003 - Umsókn um byggingarleyfi - Bæjargata 11-19
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar raðhúsa við Bæjargötu 11-19.
2.18 - 1501400 - Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 27
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar fjölbýlishúss með tíu íbúðum við Holtsveg 27. Baldur Ó Svavarsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.
2.19 - 1501399 - Umsókn um byggingarleyfi - Hraungata 19-23
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar fjölbýlishúss með fjórum íbúðum við Hraungötu 19 - 23. Baldur Ó Svavarsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.
2.2 - 1409324 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 - Viðaukar 1-4
Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2015 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. María Grétarsdóttir, situr hjá.$line$$line$Viðauki 1 kr. 60.000.000 Viðhald gatna$line$Viðauki 2 kr. 1.500.000 Framlag samkvæmt lögum um orlof húsmæðra $line$Viðauki 3 kr. 6.000.000 Sjálandsskóli - launakostnaður$line$Viðauki 4 kr. 44.000.000 Framlag til GKG $line$Viðauki 4 kr. 50.000.000 Framlag til golfskála GKG skv. framkvæmdayfirliti fellur niður$line$$line$Ofangreindum viðaukum nr. 1-4 skal mætt með lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 61.500.000.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 6/5 ´15.
Sigríður Björk Gunnarssdóttir, ræddi 1. tl., samráð og samstarf við skólastjórnendur og sagði nánar frá jákvæðum umræðum um málið á fundinum.$line$$line$Sigríður Hulda ræddi 1. tl., samráð og samstarf við skólastjórnendur og 2. tl., hundrað ára afmæli kosningaréttar kvenna.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
04
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 29/4 ´15.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., opinn fundur menningar- og safnanefndar og greindi frá því að verið er að vinna að samantekt um helstu umræðuefni sem verður aðgengileg innan tíðar á vef bæjarins.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 18/5 ´15.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl. uppskeruhátíð menningar og lista. Gunnar vakti athygli á dagskrá hátíðarinnar sem verður í samkomuhúsinu á Garðaholti 28. maí n.k. $line$$line$Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ frá 18/5 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð umhverfisnefndar frá 15/4 ´15.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., hreinsunarátak 2015 og 6. tl., trjágróður á lóðarmörkum.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
10
Fundargerð umhverfisnefndar frá 13/5 ´15.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., íbúafund umhverfisnefndar og sagði frá að verið er að vinna samantekt um helstu umræðuefni fundarins sem verður gerð aðgengileg á vef bæjarins.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.
11
Fundargerðir heilbrigðisnefndar frá 27/4 og 18/5 ´15.
Fundargerðirnar lagðar fram.
12
Fundargerð stjórnar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 15/5 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
13
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 5/5 og 15/5 ´15.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., fg. 5/5 ´15 árshlutauppgjör og 1. tl., fg. 15/5 ´15 skýrslu innri endurskoðunar um innleiðingu á akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.$line$$line$Gunnar Einarsson, ræddi 4. tl., fg. 5/5 ´15 árshlutauppgjör.$line$$line$Fundargerðirnar lagðar fram.