Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 19/5 ´15.

Málsnúmer 1505014F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. fundur

Til sérstakrar afgreiðslu:

Forseti vakti athygli á leiðréttingu á fundargerðinni varðandi bókun undir dagskrárlið 9, afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi stuðning við hádegistónleikaraðir í Garðabæ sumarið 2015.$line$$line$Sturla Þorsteinsson, vék sæti við umræðu og afgreiðslu um 14. tl., og tók Gunnar Valur Gíslason, varaforseti við stjórn fundarins.$line$$line$Forseti tók aftur við fundarstjórn.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi framlagða bókun og fjallaði í því sambandi almennt um lengd bókana.$line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi 13. tl., samstarfsyfirlýsingu um mál er varða heimilisofbeldi og lýsti ánægju með þátttöku Garðabæjar í verkefninu.$line$$line$Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 9. tl., afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi stuðning við umsókn um hádegistónleikaraðir í Garðabæ og 10. tl., afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi umsögn um tillögu um minjaskála við Hofsstaði.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 10. tl. afgreiðslu menningar- og safnanefndar varðandi umsögn um tillögu um minjaskála við Hofsstaði og gerði nánari grein fyrir samþykkt nefndarinnar um að styðja skipun starfshóps til að vinna frekar að málinu.$line$$line$Fundargerðin sem er 19 tl. er samþykkt samhljóða.