Beint í efni

6. fundur

12.11.2014
Umhverfisnefnd Garðabæjar

6. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

12.11.2014

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
  • Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1409324

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015

Tekið fyrir erindi frá Guðjóni Friðrikssyni bæjarritara dags. 28. okt. sl. um umfjöllun hjá fastanefndum á tillögum til fjárhagsáætlunar fyrir árin 2015-2018,deildaryfirlit fyrir 2015, áætlun á málaflokkar fyrir 2015, málaflokkayfirlit fyrir 2015 og framkvæmdaáætlun 2015-2018.

Umhverfisnefnd óskar eftir endurskoðun á framkvæmdaáætlun, þannig að tillaga nefndarinnar um fjárveitingu til uppbyggingar á náttúrutengdum útivistarsvæðum s.s. friðlýstum svæðum komist til framkvæmda.

Málsnúmer 1410061

02

Skýrsla náttúruverndarnefnda 2014

Lögð fram skýrsla á störfum nefndarinnar starfsárið 2014, sem lögbundið er að senda til Umhverfisstofnunar. Skýrslan var unnin í samráði við fyrrverandi og núverandi formenn umhverfisnefndar.

Starfsskýrslur náttúruverndarnefnda voru til umfjöllunar á ársfundi nefndanna með Umhverfisstofnun þann 6. nóv sl.

Málsnúmer 1410438

03

Skýrsluskil vegna refa- og minkaveiða 2014

Skil á skýrslu yfir refa- og minkaveiðum árið 2014 til Umhverfisstofnunar.

Umhverfisstjóri upplýsti um fjölda veiddra minka, kanína og villikatta í bæjarlandinu. Ekki er unnið á refum í lögsögu Garðabæjar.

Málsnúmer 1410440

04

Veiðileyfi í Vífilsstaðavatni 2014 - lokauppgjör

Uppgjör fyrir innkomu veiðileyfa frá Veiðikortinu ehf. veiðitímabilið 1. apríl - 15. september 2014 í Vífilsstaðavatni.

Lagt fram.

Málsnúmer 1410253

05

Skógrækt í lúpínubreiðum

Bæjarráð vísar til kynningar þann 21. okt. sl. erindi Skógræktarfélags Íslands er varðar ályktun frá aðalfundi um skógrækt í lúpínubreiðum, dags 6. okt. 2014.

Umhverfisnefnd er upplýst um að Skógræktarfélag Garðabæjar hefur gróðursett stærri trjáplöntur í lúpínubreiður á skógræktarsvæðum.

Málsnúmer 1410062

06

Ársfundur náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og Umhverfisstofnunar og umsjónaraðila friðlýstra svæða

Frá ársfundi náttúruverndarnefnda með Umhverfisstofnun sem haldinn var á Hvolsvelli þann 6. okt. er formaður og umhverfisstjóri tóku þátt í. Í framhaldi var fundur umsjónaraðila friðlýstra svæða þann 7. okt. er umhverfisstjóri tók þátt í.

Nefndarfólk var upplýst um málefni fundanna.