44. (1712). fundur
44. (1712). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
17.11.2015
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015, málaflokkayfirlit janúar - október.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði nánari grein fyrir stöðu málaflokka samkvæmt yfirliti fyrir tímabilið janúar - október 2015.
Fylgiskjöl
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 (2017-2019)
Fjármálastjóri sat einnig fund bæjarráðs undir þessum dagsskrárlið.
Lagt fram deildayfirlit fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.
Fylgiskjöl
03
Umsókn um byggingarleyfi - Frjóakur 7
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar einbýlishúss á lóðinni við Frjóakur 7.
04
Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 41
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna fjölgunar íbúða um eina í fjölbýlishúsinu við Holtsveg 41, sem verður til við breytingu á félagsaðstöðu.
05
Holtsvegur 51 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna fjölgunar um eina íbúð í fjölbýlishúsinu að Holtsvegi 51.
06
Umsókn um byggingarleyfi - Sunnuflöt 44
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna endurbyggingar einbýlishússins við Sunnuflöt 44.
07
Tillaga Fólksins í bænum til bæjarráðs vegna byggingar fjölnota knatthúss
Tillagan rædd og afgreiðslu frestað.
Fylgiskjöl
08
Tillaga Bjartrar framtíðar um knatthús eða fjölnotahús
Tillagan rædd og afgreiðslu frestað.
09
Fundargerð verkefnastjórnar um byggingu íþrótta- og félagsaðstöðu GKG, dags. 02.11.15.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir framkvæmdum við byggingu íþrótta- og félagsaðstöðu GKG.
Fylgiskjöl
10
Tillaga Bjartrar framtíðar um fjölgun bygginga á litlum og ódýrum íbúðum í Garðabæ
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
11
Tillaga Bjartrar framtíðar um ítarlega flokkun á heimilissorpi
Tillagan rædd og afgreiðslu frestað.
12
Bréf Hildar Friðriksdóttur um fjölgun götuskilta í Garðabæ, dags. 11.11.15.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að taka saman minnisblað um gerð helstu veg- og götumerkinga í bænum.
Fylgiskjöl
13
Svör við fyrirspurnum Bjartrar framtíðar um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Garðabæ
Lögð fram.
14
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi áramótabrennu 2015, dags 13.11.15.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
16
Bréf Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla um styrk vegna starfsársins 2016, dags. 12.11.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.
Fylgiskjöl
18
Samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar - skipun dómnefndar
Lögð er fram tillaga um skipan fimm manna dómnefndar vegna samkeppni um rammaskipulag fyrir Lyngássvæðið og skal nefndin skipuð þremur fulltrúum frá Garðabæ og tveimur frá Arkitektafélagi Íslands.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar tilnefningu á fulltrúum Garðabæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
19
Þórsmörk - sölutilboð, dags. 12.11.15
Lagt er fram sölutilboð eigenda Þórsmerkur að fjárhæð kr. 61.500.000.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tilboðið.