Fjölgun bygginga á litlum og ódýrum íbúðum í Garðabæ
Málsnúmer 1511091
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
9. fundur
Lagt fram. Súsanna B. Vilhjálmsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Björt framtíð fagnar því að tillaga sem lögð var fram á bæjarstjórnarfundi 5.11.2015 um "að unnið verði á markvissari hátt að því að fjölga byggingu á litlum og ódýrum íbúðum í Garðabæ" sé tekin fyrir á skipulagsfundi. Í huga okkar er nauðsynlegt að bjóða upp á raunhæfa húsakosti fyrir ungt fólk og barnafólk með því að hefja samtalið strax við verktaka sem hafa óskað eftir lóðum til að byggja ódýrar íbúðir í Garðabæ t.d. í Lyngási"
Bæjarráð Garðabæjar
03
44. (1712). fundur
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar skipulagsnefndar.