Beint í efni

14. fundur

03.10.2013
Skipulagsnefnd Garðabæjar

14. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

03.10.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stefán Snær Konráðsson - formaður
  • Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
  • Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Agnar W Ástráðsson - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1302203

01

Kirkjubrú 1, dsk

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Kirkjubrúar sem unnin hefur verið af Guðna Pálssyni arkitekt fyrir landeigendur. Tillagan gerir ráð fyrir 14 einbýlishúsum og 6 parhúsum, alls 26 íbúðareiningum. Tillagan er innan ramma aðalskipulags.Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 4.mgr. 40.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2008120065

02

Garðahverfi, deiliskipulag.

Lögð fram tillag að deiliskipulagi Garðahverfis. Tillagan var í kynningu frá 14.ágúst til 25.september. Eitt athugasemdabréf og umsögn Minjastofnunar hafa borist og þau lögð fram.Málinu vísað til úrvinnslu á tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1212097

03

Keldugata 20, dsk-br - Urriðaholt vesturhl.

Tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Keldugöta 20 lögð fram sem gerir ráð fyrir því að íbúðum fjölgi úr 3 í 6. Tillagan var í kynningu frá 21.desember til 4.febrúar sl. Vegna athugasemdar var ákveðið að skoða hvort aðrir lóðarhafar fjölbýlishúsalóða við götuna hefðu áhuga á að óska eftir breytingum með það að markmiði að fá heildarsýn yfir breytingar á skipulagi götunnar. Skoðaðar voru hugmyndir að fjölgun sem nam allt að 7 íbúðum. Ljóst er að hagsmunaaðilar fallast ekki á fjölgun íbúða í götunni.Skipulagsnefnd hafnar tillögunni með vísan til þeirra athugasemda sem gerðar hafa verið í tengslum við skoðun á götunni í heild sinni.

Málsnúmer 1309702

04

Hellagata 31, dsk br

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir tillögu að breytingu á deiliskipulagi.Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1309703

05

Holtsvegur 51, dsk br

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir tillögu að breytingu á deiliskipulagi.Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1309700

06

Hraungata 19-23, 41-45 og 47-51, dsk br

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir tillögu að breytingu á deiliskipulagi.Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1212099

07

Hraungata 25-39, dsk-br - Urriðaholt vesturhl.

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir tillögu að breytingu á deiliskipulagi.Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1305509

08

Urriðaholt-Norðurhluti deiliskipulag

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir tillögu að breytingu að deiliskipulagi fjögurra fjölbýlishúsalóða og leikskólalóðar.Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1310111

09

Urriðaholt, vesturhluti, dsk br vegna salarhæðar

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir tillögu að breytingu á deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir því að skilgreind salarhæð fjölbýlishúsa verði 2,9 m í stað 3,0.Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1310112

10

Suðurhraun 8, spennistöð, dsk breyting.

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Molduhrauns sem gerir ráð fyrir því að lóð nr. 8 við Suðurhraun sem ætluð er fyrir spennustöð færist að lóðarmörkum við Suðurhraun 12. Samþykki allra hlutaeigandi lóðarhafa liggur fyrir. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns í samræmi við 2.mgr.43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem að samþykki allra hlutaðeigandi liggur fyrir fellir skipulagsnefnd grenndarkynningu niður í sbr 3.mgr. 44.gr. sömu laga.