Trjágróður á lóðamörkum 2014
Málsnúmer 1402108
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
37. fundur
Minnisblöð garðyrkjustjóra dags. 31.01.14 og 14.02.14 um trjágróður á lóðamörkum í bænum. Þar kemur fram að ástandið hefur lagast frá fyrri árum. Athugasemdir nú eru 138, móti 371 á fyrra ári. Samt eru fáir aðilar sem ekki lagfæra trjágróður sinn við lóðamörk þrátt fyrir ítrekuð bréf og eftirfylgni garðyrkjustjóra.
Nefndin er ánægð með að ástandið á trjágróðri á lóðamörkum hefur batnað.$line$$line$Umhverfisnefnd styður aðgerðir garðyrkjustjóra að framkvæma klippingu á kostnað lóðaeiganda.