39. fundur
39. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
11.04.2014
Kl. 12:00 - 13:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - Formaður
- Elín Birna Guðmundsdóttir - Aðalmaður
- Sigurður Bjarnason - Aðalmaður
- Victor Ingi Olsen - Aðalmaður
- Bragi Þorsteinn Bragason - aðalmaður
- Einar Karl Birgisson - áheyrnarfulltrúi
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1404265
01
Forsendur samninga við félög í Garðabæ
Forsendur samninga við félög í Garðabæ eru nú til skoðunar og stefnt að því að samsvarandi ákvæði verði í öllum samningunum. Auk þess verði tekið tillit til sérstöðu hvers félags eftir því sem hægt er.$line$Meðfylgjandi eru fyrstu drög að forsendum samninga.
Samþykkt var uppsetning á þeim liðum sem koma fram í samstarfssamningum við frjáls félög í bænum.$line$Stefnt er að því að samið verði til lengri tíma en verið hefur til að koma á meiri festu í grunn starfsemi félaganna.$line$Undirskrift nýrra samninga fari fram í byrjun maí nk.
Málsnúmer 1402318
02
Ferðastyrkir 2014
Ferðastyrkir vegna landsliðsferða að upphæð 20.000,- kr hver.
ÍTG samþykkir eftirfarandi ferðastyrki vegna landsliðsferða að upphæð 20.000,- kr hver.$line$2 ferðir: Hilmar Örn Skagfield Jónsson kt. 0612943259 Skylmingar, USA og HM Búlgaría 30.02 og 25.03. 2014$line$2 ferðir: Pétur Árni Hauksson kt. 0507982759, U-16 Handbolti, Æfingamót Póllandi og Þýskalandi$line$Davíð Bjarni Björnsson kt. 0905982529 U-17 í badminton EM í Tyrklandi 13.-23.mars 2014$line$Margrét Jóhannsdóttir kt 1001952329 U19 badminton, Italian Junior International 26. Mars 2014$line$Helga María Vilhjálmsdóttir kt. 2504952699 A-landslið SKÍ, HM unglinga Slóvakía 24. febrúar 2014
Málsnúmer 1402383
03
Endurskoðun íþrótta og tómstundastefnu
Liggur fyrir til samþykktar eftir að kallað hefur verið eftir athugasemdum annarra nefnda innan Garðabæjar.
Samþykkt að senda fyrirliggjandi stefnu í íþrótta- og tómstundamálum til bæjarstjórnar til endanlegrar samþykktar.
Málsnúmer 1402317
04
Önnur mál 2014
a) ....$line$b) ....$line$c) ....
a) Rætt um skólastefnu Garðabæjar. Athugasemdum er hægt að skila til íþróttafulltrúa sem síðan safnar þeim saman til skólanefndar fyrir 16. apríl 2014$line$Næsti fundur og sá síðasti hjá núverandi nefnd verður 23. maí 2014 kl. 12:00 í Ásgarði