Beint í efni

3. fundur

20.10.2014
Leikskólanefnd Garðabæjar

3. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Garðabæ

20.10.2014

Kl. 17:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Viktoría Jensdóttir - formaður
  • Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
  • Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
  • Snævar Sigurðsson - aðalmaður
  • Eymundur Sveinn Einarsson - aðalmaður
  • Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Ída Björg Unnarsdóttir - fulltrúi starfsmanna
  • Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
  • Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra

Ritari

  • Anna Magnea Hreinsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1409475

01

Starfsáætlanir leikskóla 2014 - 2015

Starfsáætlanir leikskólanna ásamt umsögnum foreldraráða lagðar fram og ræddar. Áætlanirnar endurspegla vel áherslur skólanna og helstu verkefni veturinn 2014 - 2015.

Málsnúmer 1409476

02

Endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Rakel Sigurðardóttir sækir um endurnýjun á leyfi til daggæslu barna

Rakel Sigurðardóttir kt.111172-5449 sækir um endurnýjun á leyfi. Samþykkt með fyrirvara um að öll gögn berist.

Málsnúmer 1409481

03

Beiðni um flutning á starfsdegi

Beiðni Litlu Ása um flutning á starfsdegi v. námsferðar

Farið yfir verklagsreglur nefndarinnar varðandi undanþágu frá samræmdu skóladagatali.$line$Litlu Ásar óska eftir að flytja starfsdaginn í október 2014 yfir á maímánuð 2015 vegnaferðar til London. Umsögn foreldraráðs fylgir. $line$Ekki kemur fram í umsögninni hvort foreldraráðið hafi haft víðtækt samráð við foreldrar. Óskar nefndin eftir því að það verði gert áður en beiðnin verður samþykkt.

Málsnúmer 1410012

04

Flutningur á starfsdegi

Beiðni Bæjarbóls um flutning á skipulagsdegi v. námsferðar

Bæjarból óskar eftir að flytja starfsdaginn í maí 2015 að apríldeginum vegna ferðar starfsmannahópsins til Toronto.$line$Umsókninni fylgir umsögn foreldraráðs þar sem fram kemur að ráðið hafi sent foreldrum bréf þar sem ósk starfsfólks var kynnt. Engar athugasemdir bárust foreldraráðinu. Beiðnin samþykkt.

Málsnúmer 1410091

05

Reglur um innritun barna í leikskóla

Reglur um innritun barna í leikskóla

Farið yfir reglur um innritun barna í leikskóla Garðabæjar. Farið er eftir aldursröð í úthlutun og hafa systkini forval í þann leikskóla sem eldra systkini er í þegar að úthlutun er komið samkvæmt aldursröð þegar kostur er á. Reglurnar ræddar og ákveðið að þær verði vel sýnilegar á heimasíðu Garðabæjar.

Málsnúmer 1401167

06

Kynningar og önnur mál 2014

a) Rætt um starfsleyfi dagforeldra og fjölda barna en hægt er að sækja um leyfi til að gæta eins til fjögurra barna fyrsta árið sem dagforeldri starfar. Ákveðið að gera skilyrði fyrir leyfisveitingu samkvæmt reglugerð um daggæslu í heimahúsum nr. 907/2005 aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar. Einnig var rætt um að kanna hvort bjóða ætti dagforeldrum í Garðabæ að velja milli þess að gerast launþegar og vera verktakar. Einnig var rætt um greiðslur til foreldra barna sem ekki eru í vistun hjá dagforeldrum eða í leikskóla.$line$b) Rætt um forsendur við fjárhagsáætlanagerð fyrir leikskólana. Gert er ráð fyrir launahækkunum í kjarasamningum og 5% hækkun á matarinnkaupum. Rætt um gjaldskrá leikskóla og mikilvægi þess að hún taki mið af vísitöluhækkun.$line$c) Rætt um heimsóknir presta í leikskóla og mikilvægi þess leikskólastjórar fylgi viðmiðum mennta- og menningarmálaráðuneytis um samskipti skóla og trúfélaga sem Garðabær hefur ákveðið að fylgja.$line$d) Gróa Margrét Finnsdóttir leikskólastjóri á Ásum kynnti starf skólans og sýndi nefndarmönnum húsnæði hans.