Beint í efni

18. fundur

13.05.2014
Bæjarráð Garðabæjar

18. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

13.05.2014

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1405089

01

Árshlutareikningar Strætó bs. jan.-mars 2014.

Lagður fram.

Málsnúmer 1209299

02

Umsókn ASK arkitekta varðandi leyfi til framkvæmda fyrir bráðabirgðabílastæðum við golfskála GKG, dags. 09.04.14.

Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti og vísar því til nánari útfærslu tækni- og umhverfissviðs.

Málsnúmer 1405075

03

Áskorun varðandi endurbætur á sundlauginni í Ásgarði, dags. 06.05.14.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með hollvinum sundlaugarinnar þar sem farið var yfir áætlanir bæjarins um um viðhald sundlaugarinnar á árinu 2014 og tillögur hollvina um frekari endurbætur. $line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að hafa samráð við hollvini sundlaugar og eftir atvikum aðra hópa varðandi áætlanir um viðhald og endurbætur á sundlauginni við Ásgarð.

Málsnúmer 1307042

04

Drög að samningum við æskulýðs- og íþróttafélög samkvæmt fjárhagsáætlun 2014.

Bæjarstjóri lagði fram drög að samningum við eftirfarandi æskulýðs- og íþróttafélög.$line$$line$Skátafélagið Svanir $line$ Rekstrarstyrkur kr. 2.200.000$line$ Útilífs og sumarnámskeið kr. 1.100.000$line$ Barna og ungmennaverkefni kr. 200.000$line$$line$UMFÁ vegna afreksstarfs kr. 1.500.000$line$$line$Golfklúbbur KÓP og GBR $line$ Rekstrarstyrkur kr. 4.000.000$line$ Vegna þjálfunar barna og unglinga kr. 2.000.000$line$ Umhirða og umsjón með púttvelli kr. 1.000.000$line$$line$Golfklúbburinn Oddur$line$ Rekstrarstyrkur kr. 5.000.000$line$ Barna og unglingastarf kr. 1.000.000$line$$line$Tennisfélag Garðabæjar$line$ Rekstrarstyrkur kr. 500.000$line$ Barna og unglingastarf kr. 500.000$line$ Húsnæðisstyrkur kr. 600.000$line$$line$Skátafélagið Vífill$line$ Rekstrarstyrkur kr. 2.800.000$line$ Útilífs og sumarnámskeið kr. 2.200.000$line$ Sumardagurinn fyrsti kr. 700.000$line$ Umsjón með hátíaðrhöldum17. júní kr. 3.700.000$line$$line$Bessastaðasókn$line$ Æskulýðsstarf kr. 2.000.000$line$$line$Garðasókn $line$ Æskulýðsstarf kr. 2.700.000$line$$line$Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar

Málsnúmer 1405113

05

Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga varðandi áætlaðar umsóknir um framlög til eflingar tónlistarnámi skólaárið 2013-2014, dags. 05.05.14.

Lagt fram.

Málsnúmer 1405060

06

Bréf Lionsklúbbsins Seylu varðandi húsnæðismál félagasamtaka á Álftanesi, dags. 02.05.14.

Bæjaráð samþykkir að vísa erindinu til bæjarstjóra.

Málsnúmer 1401261

07

Erindi lóðarhafa lóða neðst í botnlöngum á Lundum um umhirðu og viðhald lóða, dags. 10.01.14.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra í samráði við íbúa að útfæra nánar með hvað hætti bærinn komi að viðhaldi og rekstri svæða í botnlöngum innan lóðarmarka í Lundahverfi. $line$$line$Bæjarráð telur að torsótt geti verið að gera breytingar á lóðarleigusamningum en til þess að það geti orðið þarf að liggja fyrir samþykki lóðarhafa vegna 48 lóða og samþykki veðhafa.

Málsnúmer 1405058

08

Bréf Hrafnhildar Sigurðardóttur og Unnar A. Jónsdóttur varðandi styrk vegna verkefnis Hugarfrelsis, dags. 02.05.14.

Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til nánari skoðunar fræðslu- og menningarsviðs.

Málsnúmer 1404160

09

Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Skólabraut 5, dags. 07.05.14.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna viðbyggingar Hofsstaðaskóla við Skólabraut 5.

Málsnúmer 1404403

10

Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Strandveg 2-10, dags. 08.05.14.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna gustlokunar svala við Strandveg 2.

Málsnúmer 1403534

11

Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Smiðsbúð 8, dags. 30.04.14.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna breytinga að Smiðsbúð 8.$line$$line$Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir hönnun á sérstakri gasgeymslu á lóð en fyrirliggja öll tilskilin leyfi frá Slökkviliði og Heilbrigðiseftirliti.

Málsnúmer 1405138

12

Bréf Skáksambands Íslands varðandi styrk vegna 100. Íslandsmótsins í skák, mótt. 09.05.14.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs.

Málsnúmer 1405139

13

Bréf Klúbbsins Geysi varðandi styrk, dags. 08.05.14.

Bæjarráð samþykkir að veita klúbbnum Geysi styrk að fjárhæð kr. 100.000.

Málsnúmer 1310553

14

Skólastefna Garðabæjar 2014-2017

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir vinnu við endurskoðun skólastefnu Garðabæjar og sagði frá helstu áherslum og niðurstöðum.$line$$line$Bæjarráð gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við tillögu að endurskoðun skólastefnu og samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að stefnunni verði vísað til umfjöllunar nýrrar skólanefndar í upphafi nýs kjörtímabils.

Málsnúmer 1401521

15

Tilkynning frá Sambandi ísl. sveitarfélaga vegna boðaðs verkfalls Félags grunnskólakennara, dags. 07.05.14.

Í tilkynningunni kemur fram að Félag íslenskra grunnskólakennara hefur boðað til verkfalls í skólum landsins dagana 15., 21. og 27. maí n.k. og hefur undanþágunefnd verið skipuð.$line$$line$Málið rætt.