Beint í efni

Fræðslu- og sögugöngur 2016

Málsnúmer 1601427

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

22. fundur

Skipulagðar fræðslu- og sögugöngur hafa gengið vel undanfarið og verið vel sóttar. Göngur með leiðsögn fræðifólks er samstarfsverkefni umhverfisnefndar og menningar- og safnanefndar.

Þær göngur sem afstaðnar eru:
1. Söguganga um Silfurtúnshverfið, þann 8. mars sl. í leiðsögn Baldurs Svavarssonar arkitekts.

2. Söguganga um Garðahverfi, þann 12 apríl sl. í leiðsögn Arinbjarnar Vilhjálmssonar skipulagsstjóra.

3. Fuglaskoðun við Kasthúsatjörn á Álftanesi, þann 10. maí sl. í leiðsögn fuglafræðinganna Dr. Ólafs Einarssonar og Jóhanns Óla Hilmarssonar.
Útikennsla í boði umhverfisnefndar var þann sama dag með fuglafræðingunum fyrir 5. bekkinga Álftanesskóla.

Þann 9. júní nk. verður söguganga um Fógetastíg. Gangan verður í leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings og er afmælisganga í tilefni af fjörtíu ára afmæli Garðabæjar.
Nánar auglýst á www.gardabaer.is

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

14. fundur

Farið nánar yfir dagsetningar á vorönn og staðfestar fræðslu- og sögugöngur í samstarfi menningar- og safnanefndar, umhverfisnefndar og Bókasafns Garðabæjar.

Upplýsinga- og menningarfulltrúi kynnti dagsetningar á fyrirhuguðum fræðslu- og sögugöngum vorsins. Göngurnar eru samstarfsverkefni umhverfisnefndar, menningar- og safnanefndar og Bókasafns Garðabæjar. Fyrirhugaðir göngudagar að vori eru: 8. mars, 12. apríl og 10. maí.
Fleiri göngur eru á dagskrá með haustinu.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

13. fundur

Samstarf menningar- og safnanefndar, umhverfisnefndar og Bókasafns Garðabæjar um fræðslu- og sögugöngur á árinu 2016.

Umhverfisnefnd hefur árlega staðið fyrir fræðslugöngum að vori og hausti og einnig hefur Bókasafn Garðabæjar í samstarfi við menningar- og safnanefnd staðið fyrir árlegum sögugöngum að vori undanfarin ár. Greint var frá hugmynd um frekara samstarf og fjölgun gangna á þessu ári í tilefni af afmæli bæjarins.
Unnið verður áfram að undirbúningi þessa máls í samstarfi við umhverfisnefnd og Bókasafn Garðabæjar.