33. (1750). fundur
33. (1750). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
30.08.2016
Kl. 08:00 - 08:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1607249
01
Holtsbúð 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð vísar umsókninni til meðferðar skipulagsnefndar samkvæmt 44. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 þar sem um er að ræða byggingarframkvæmdir í þegar byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Málsnúmer 1608423
02
Bréf SHJ og REH um styrk til að bæta aðgengi fyrir hjólastól, dags. 23.08.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar bæjarstjóra.
Málsnúmer 1608510
03
Beiðni AJ, EBH og IH um skiptingu einbýlishúss í tvær eignir, dags. 25.08.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1608440
04
Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar á fjárhag og stjórnsýslu sveitarfélaga, dags. 23.08.16.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa vinnu við greiningu á þörf fyrir leiguíbúðir innan sveitarfélagsins og gerð húsnæðisáætlunar ásamt því að undirbúa setningu reglna um framkvæmd húsnæðismála samkvæmt ákvæðum nýrra laga um húsnæðismál.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1604276
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Lynggata 2-4.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Lynggötu 2-4 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í grenndarkynningu.
Málsnúmer 1608481
06
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög), 674. mál, dags. 24.08.16.
Málsnúmer 1608480
07
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um ályktanir frá fundi sveitarstjórnarvettvangs EFTA.
Málsnúmer 1608473
08
Bréf Sorpu bs. varðandi árshlutauppgjör fyrir tímabilið janúar - júní 2016, dags. 22.08.16.
Málsnúmer 1608397
09
Bréf Stjörnunnar um afnot af íþróttahúsinu við Ásgarð fyrir samkomuhald, dags. 22.08.16.
Í bréfinu er farið fram á að nýta íþróttahúsið við Ásgarð í fjáröflunarskyni fyrir árshátíð Marels á árinu 2017.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið enda verði tryggt sem best að ekki komi til skerðingar á íþróttastarfi og skólastarfi. Jafnframt skal það tryggt að uppfyllt séu öll skilyrði til skemmtanahalds og að ekki komi til kostnaðar fyrir bæinn vegna málsins.
Þá skulu lagðar fram tryggingar vegna hugsanlegs tjóns á húsnæði og búnaði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1506161
10
Afmælishátíð Garðabæjar í nýjum miðbæ 3. september 2016 - dagskrá.
Formaður bæjarráðs sem jafnframt er formaður afmælisnefndar kynnti dagskrá afmælishátíðar í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar sem haldin verður í nýjum miðbæ við Garðatorg laugardaginn 3. september nk.