Bréf Stjörnunnar um afnot af íþróttahúsinu við Ásgarð fyrir samkomuhald, dags. 22.08.16.
Málsnúmer 1608397
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
33. (1750). fundur
Í bréfinu er farið fram á að nýta íþróttahúsið við Ásgarð í fjáröflunarskyni fyrir árshátíð Marels á árinu 2017.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið enda verði tryggt sem best að ekki komi til skerðingar á íþróttastarfi og skólastarfi. Jafnframt skal það tryggt að uppfyllt séu öll skilyrði til skemmtanahalds og að ekki komi til kostnaðar fyrir bæinn vegna málsins.
Þá skulu lagðar fram tryggingar vegna hugsanlegs tjóns á húsnæði og búnaði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.