Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Lynggata 2-4.

Málsnúmer 1604276

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

33. (1750). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Lynggötu 2-4 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í grenndarkynningu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

11. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskiplagi Norðurhluta Urriðaholts 2.áfanga sem gerir ráð fyrri stækkunum á byggingarreitum efstu hæðar. Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir bárust og jákvæð umsögn liggur fyrir. Breyting skoðast því samþykkt sbr. 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

9. (792). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

9. (792). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að vísa til grenndarkynningar, samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, óverulegri breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna stækkunar á byggingarreit lóðarinnar við Lynggötu 2-4. Grenndarkynna skal lóðarhöfum Dyngjugötu 1-3,5,7,9,11,13 og jafnframt skal tillagan send til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.

Bæjarráð Garðabæjar

05

20. (1737). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að vísa til grenndarkynningar, samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, óverulegri breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna stækkunar á byggingarreit lóðarinnar við Lynggötu 2-4. Grenndarkynna skal lóðarhöfum Dyngjugötu 1-3,5,7,9,11,13 og jafnframt skal tillagan send til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

9. fundur

Lagt fram erindi frá lóðarhafa þar sem óskað er eftir því að byggingarreitur efstu hæðar stækki um 28,5 m2.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts, norðurhluta 2 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal lóðarhöfum Dyngjugötu 1-3,5,7,9,11,13 og 15. Áður er tillagan er grennarkynnt skal liggja fyrir jákvæð umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.