Umhverfisvöktun 2016
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
25. fundur
Niðurstöður frá Heilbrigðiseftirliti vegna mælinga úr Vífilsstaðavatni, Hraunsholtslæk, Arnarneslæk, Urriðavatni og Stórakrókslæk í sýnum teknum 27. júní sl.
Verkefnið er liður í vöktun efnamengunar sem gerð er samkvæmt vöktunaráætlun Garðabæjar 2016 sem þýðir að sýnatökur eru tíðari yfir sumarið en reglubundnar sýnatökur sem viðhafðar eru vor og haust.
Umhverfisnefnd fylgist stöðugt með niðurstöðum mælinga og fylgir þeim eftir.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
29. (1746). fundur
Bæjarverkfræðingur fór yfir málið og greindi frá vinnu starfsmanna þjónustumiðstöðvar við könnun á tengingum í húsum. Einnig kom fram að hlýnandi veður og aukið fugla- og dýralíf í og við votlendi á sumrin kemur m.a. fram í aukinni gerlamergð. Þá geta þurrkar og lægri grunnvatnsstaða dregið úr vatnsflæði og þannig stuðlað að hægari þynningu.
Fylgiskjöl
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
21. fundur
Verkefni umhverfisvöktunar í ár verða sýnatökur og mælingar á næringarefnum og efnamengun í Vífilsstaðavatni og Urriðavatni.
Samið hefur verið við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis um verkefnið.