Beint í efni

29. (1746). fundur

26.07.2016
Bæjarráð Garðabæjar

29. (1746). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

26.07.2016

Kl. 08:00 - 08:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - varamaður
  • Gísli Geir Jónsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Guðfinna Björk Kristjánsdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðfinna Björk Kristjánsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1607167

01

Bréf foreldra barna í Sjálandsskóla um aðbúnað á skólalóð, dags. 17.07.16.

Bæjarstjóri fór yfir málið og greindi frá árlegum skoðunum á öryggi skólalóða. Bæjarráð felur bæjarstjóra og skólastjórnendum Sjálandsskóla að ræða við bréfritara og vísar erindinu til nánari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1607202

02

Tillaga um áskorun til íbúa um hirðingu einkalóða

Bæjarstjóri ræddi árlega garðaskoðun í tilefni af afhendingu viðurkenninga fyrir snyrtilegar lóðir 2016 og lagði fram fram eftirfarandi tillögu:

Tillaga:

„Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að hvetja íbúa til að hafa lóðir sínar snyrtilegar á 40 ára afmælisári Garðabæjar.“

Greinargerð:

Í Garðabæ eru víða stórar lóðir og margir fallegir og vel hirtir garðar prýða bæinn. Inn á milli eru þó lóðir sem þarfnast umhirðu og geta sett blett á nærumhverfi sitt. Nú þegar Garðabær fagnar 40 ára afmæli er enn meiri ástæða en áður til að hvetja alla íbúa til að huga að garðinum og sjá til þess að hann sé snyrtilegur og stuðli að fallegri heildarmynd í götunni. Líkt og áður er sérstaklega mikilvægt að íbúar gæti að því að tré og runnar á lóðamörkum séu vel snyrt. Gróður sem vex út fyrir lóðamörk getur skapað hættu, t.d. fyrir gangandi og hjólandi fólk á gangstéttum og -stígum. Í tilefni stórafmælis bæjarins er þó rétt að hvetja garðeigendur til að huga einnig að gróðri inni á lóðum sínum. Í hvatningu til íbúa má benda á leiðbeiningar um umhirðu garða sem eru á vef Garðabæjar. Hvatning til íbúa getur t.d. verið í formi auglýsingar, dreifibréfs eða umfjöllunar í bæjarblöðum og á vef Garðabæjar sem og á samfélagsmiðlum.

Málið rætt og fram kom ábending um að benda fólki einnig á að huga að háum aspartrjám sem geta skyggt á útsýni og valdið skuggamyndun.

Bæjarráð samþykkir framkomna tillögu einróma.

Málsnúmer 1602382

03

Umhverfisvöktun 2016 - niðurstöður mælinga í júní.

Bæjarverkfræðingur fór yfir málið og greindi frá vinnu starfsmanna þjónustumiðstöðvar við könnun á tengingum í húsum. Einnig kom fram að hlýnandi veður og aukið fugla- og dýralíf í og við votlendi á sumrin kemur m.a. fram í aukinni gerlamergð. Þá geta þurrkar og lægri grunnvatnsstaða dregið úr vatnsflæði og þannig stuðlað að hægari þynningu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511044

04

Rekstur grenndargáma í maí og júní.

Lagt fram.