Beint í efni

Tillaga um áskorun til íbúa um hirðingu einkalóða

Málsnúmer 1607202

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

29. (1746). fundur

Bæjarstjóri ræddi árlega garðaskoðun í tilefni af afhendingu viðurkenninga fyrir snyrtilegar lóðir 2016 og lagði fram fram eftirfarandi tillögu:

Tillaga:

„Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að hvetja íbúa til að hafa lóðir sínar snyrtilegar á 40 ára afmælisári Garðabæjar.“

Greinargerð:

Í Garðabæ eru víða stórar lóðir og margir fallegir og vel hirtir garðar prýða bæinn. Inn á milli eru þó lóðir sem þarfnast umhirðu og geta sett blett á nærumhverfi sitt. Nú þegar Garðabær fagnar 40 ára afmæli er enn meiri ástæða en áður til að hvetja alla íbúa til að huga að garðinum og sjá til þess að hann sé snyrtilegur og stuðli að fallegri heildarmynd í götunni. Líkt og áður er sérstaklega mikilvægt að íbúar gæti að því að tré og runnar á lóðamörkum séu vel snyrt. Gróður sem vex út fyrir lóðamörk getur skapað hættu, t.d. fyrir gangandi og hjólandi fólk á gangstéttum og -stígum. Í tilefni stórafmælis bæjarins er þó rétt að hvetja garðeigendur til að huga einnig að gróðri inni á lóðum sínum. Í hvatningu til íbúa má benda á leiðbeiningar um umhirðu garða sem eru á vef Garðabæjar. Hvatning til íbúa getur t.d. verið í formi auglýsingar, dreifibréfs eða umfjöllunar í bæjarblöðum og á vef Garðabæjar sem og á samfélagsmiðlum.

Málið rætt og fram kom ábending um að benda fólki einnig á að huga að háum aspartrjám sem geta skyggt á útsýni og valdið skuggamyndun.

Bæjarráð samþykkir framkomna tillögu einróma.