Beint í efni

25. fundur

10.08.2016
Umhverfisnefnd Garðabæjar

25. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

10.08.2016

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Halldór Halldórsson - varamaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - varamaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1607119

01

Snyrtilegt umhverfi 2016

Viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi 2016 voru veittar í golfskála GKG þann 21. júlí sl. Veittar voru viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis, fyrirtækis, fyrir opið svæði og snyrtilega götu.

Á afmælisári Garðabæjar er hvatt til þess að bærinn sé snyrtilegur. Vekur umhverfisnefnd athygli íbúa á fræðsluefni á www.gardabaer.is

Málsnúmer 1601605

02

Reglur um auglýsingar utan þéttbýlis

Erindi frá Umhverfisstofnun varðandi óheimilar auglýsingar meðfram vegum og annars staðar utan þéttbýlis.

Lagt fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1606494

03

Styrkir úr Orkusjóði

Orkusjóður auglýsir styrki til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla. Við úthlutun styrkjanna verður sérstök áhersla lögð á eftirfarandi:

Að verkefnið auki aðgengi sem flestra landsmanna að innviðum fyrir hleðslu rafbíla á landsvísu.

Að rekstur þeirra innviða sem umsókn snýr að verði tryggður í a.m.k. 3 ár.

Hvernig staðið verði að upplýsingagjöf til neytenda og opinberra aðila.

Umsóknarfrestur er til 1. október 2016.

Umhverfisstjóra er falið að sækja um styrk til Orkusjóðs með Garðatorg í huga.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1606483

04

Skýrsla um aðgerðir til að draga úr notkun plastpoka

Burðarpokar úr plasti.

Tillögur frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti að aðgerðum um hvernig draga megi úr notkun plastpoka.

Gagnleg skýrsla starfshóps sem skipaður var af umhverfis- og auðlindaráðherra verður rýnd og höfð til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu í umhverfismálum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1606408

05

Uppbygging ferðamannastaða

Lögð fram drög að skýrslu um 10 svæði í Garðabæ til nauðsynlegrar uppbyggingar innviða til verndar náttúru- eða menningarminja.

Þetta er greining á uppbyggingarþörf til landsáætlunar um uppbyggingu innviða sem Samband íslenskra sveitarfélaga stendur að.

Umhverfisnefnd líst vel á drögin og vill vinna með þau áfram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1606484

06

Umsóknir um styrki úr húsfriðunarsjóði

Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna sérstakrar úthlutunar úr húsafriðunarsjóði til að undirbúa tillögu að verndaráætlun í byggð.

Umsóknarfrestur er til 17. ágúst nk.

Umhverfisnefnd leggur til að sótt verði um styrk vegna Garðahverfis.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1602382

07

Umhverfisvöktun 2016

Niðurstöður frá Heilbrigðiseftirliti vegna mælinga úr Vífilsstaðavatni, Hraunsholtslæk, Arnarneslæk, Urriðavatni og Stórakrókslæk í sýnum teknum 27. júní sl.

Verkefnið er liður í vöktun efnamengunar sem gerð er samkvæmt vöktunaráætlun Garðabæjar 2016 sem þýðir að sýnatökur eru tíðari yfir sumarið en reglubundnar sýnatökur sem viðhafðar eru vor og haust.

Umhverfisnefnd fylgist stöðugt með niðurstöðum mælinga og fylgir þeim eftir.

Fylgiskjöl