Snyrtilegt umhverfi 2016
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
25. fundur
Viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi 2016 voru veittar í golfskála GKG þann 21. júlí sl. Veittar voru viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis, fyrirtækis, fyrir opið svæði og snyrtilega götu.
Á afmælisári Garðabæjar er hvatt til þess að bærinn sé snyrtilegur. Vekur umhverfisnefnd athygli íbúa á fræðsluefni á www.gardabaer.is
Bæjarráð Garðabæjar
02
28. (1745). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögur umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi 2016.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
24. fundur
Umhverfisnefnd fór vettvangsferð um bæinn eftir ábendingum sem bárust um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis, fyrirtækja, opins svæðis og/eða götu.
Nefndin sendir bæjarráði tillögur um sex lóðir íbúðarhúsnæðis, eina lóð fyrirtækis, opins svæðis og snyrtilegustu götuna.