Beint í efni

24. fundur

13.07.2016
Umhverfisnefnd Garðabæjar

24. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

13.07.2016

Kl. 16:15 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Halldór Halldórsson - varamaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1607119

01

Snyrtilegt umhverfi 2016

Umhverfisnefnd fór vettvangsferð um bæinn eftir ábendingum sem bárust um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis, fyrirtækja, opins svæðis og/eða götu.

Nefndin sendir bæjarráði tillögur um sex lóðir íbúðarhúsnæðis, eina lóð fyrirtækis, opins svæðis og snyrtilegustu götuna.

Málsnúmer 1607148

02

Friðland Vífilsstaðavatns, grunur um eggjastuld

Umhverfisnefnd lítur á eggjastuld í friðlandi Vífilsstaðavatns sem mjög alvarlegt mál. Undanfarin ár hefur verið hlúð að varpi flórgoða í friðlandinu og hefur það tekist vonum framar og flórgoðum fjölgað á vatninu.

Nú lítur út fyrir að flórgoðunum takist ekki að koma upp ungum því grunur er um að eggjum hafi verið stolið undan þeim.