Beint í efni

Landsáætlun og Framkvæmdasjóður ferðamannastaða

Málsnúmer 1606408

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

27. fundur

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga 7.10.16, ábending til sveitarfélaga um að nota tækifærið að til umsagnar eru drög að "Landsáætlun um uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum" með fresti til 2. nóvember nk.

Einnig er bent á að opnað er fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða með umsóknarfresti til 25. október nk.

Ábending til sveitarfélaga frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 07.10.16 um að til umsagnar eru drög að "Landsáætlun um uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum" með fresti til 2. nóvember nk.

Einnig er bent á að opnað er fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða með umsóknarfresti til 25. október nk.

Nefndin leggur til að senda umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða fyrir gerð bílaplans við upphaf gönguleiðar á Búrfell og Strandstíginn á Álftanesi.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

25. fundur

Lögð fram drög að skýrslu um 10 svæði í Garðabæ til nauðsynlegrar uppbyggingar innviða til verndar náttúru- eða menningarminja.
Þetta er greining á uppbyggingarþörf til landsáætlunar um uppbyggingu innviða sem Samband íslenskra sveitarfélaga stendur að.

Umhverfisnefnd líst vel á drögin og vill vinna með þau áfram.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

25. (1742). fundur

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Huldu Hauksdóttur, upplýsinga- og menningarfulltrúa sem tengilið Garðabæjar vegna verkefnisins um uppbyggingu innviða ferðamannastaða.

Fylgiskjöl