Beint í efni

25. (1742). fundur

28.06.2016
Bæjarráð Garðabæjar

25. (1742). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

28.06.2016

Kl. 08:00 - 08:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón E. Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1606438

01

Niðurstöður kjarakönnunar BHM um kynbundinn launamun.

Á fund bæjarráðs mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og rifjaði upp niðurstöður kjarakönnunar sem gerð var fyrir Garðabæ árið 2014 þar sem niðurstaðan var að ekki væri um að ræða marktækan kynbundinn mun á heildarlaunum karla og kvenna hjá Garðabæ.

Mannauðsstjóri gerði grein fyrir viðbrögðum Sambands ísl. sveitarfélaga vegna kjarakönnunar BHM og sagði frá því að í framhaldi af frétt samtakanna um kynbundinn launamun hjá sveitarfélögum samkvæmt könnuninni hafi farið fram skoðun innanhús hjá Garðabæ. Niðurstaða þeirrar skoðunar er í samræmi við fyrri könnum um að ekki er um marktækan kynbundinn launamun hjá Garðabæ.

Málsnúmer 1602209

02

Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfi fyrir veitingastað á Garðatorgi

Bæjarráð gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1606408

03

Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga um uppbygging innviða ferðamannastaða, dags. 02.05.16.

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Huldu Hauksdóttur, upplýsinga- og menningarfulltrúa sem tengilið Garðabæjar vegna verkefnisins um uppbyggingu innviða ferðamannastaða.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1606415

04

Tilboð um sölu húseigna að Holti á Garðaholti, dags. 20.06.16.

Lagt fram sölutilboð að fjárhæð kr. 37.500.000.

Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.

Málsnúmer 1606420

05

Bréf Skipulagsstofnunar varðandi landsskipulag 2015-2026, dags. 16.06.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í skipulagsnefnd og samþykkir að tilnefna Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóra sem tengilið Garðabæjar við samráðsvettvang Skipulagsstofnunnar um framfylgd landsskipulagsstefnu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1606425

06

Bréf MCPB ehf. varðandi uppbyggingu einkaspítala og hótels í Vetrarmýri, dags. 22.06.16.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við bréfritara um hugsanlega uppbyggingu og þróun á starfsemi einkaspítala og hótels í Vetrarmýri. Jafnframt samþykkir bæjarráð að fela bæjarstjóra að hlutast til að fram fari mat á verðmæti svæðisins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503196

07

Framkvæmdir og breytingar í Garðaskóla vegna fjölgunar nemenda.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir tillögu um framkvæmdir og breytingar innanhús í Garðaskóla sem miða að því að bæta við kennslurými samhliða því að útihús við skólann verði nýtt fyrir starfsemi tómstundaheimilis Flataskóla vegna fjölgunar nemenda í skólanum.

Bæjarráð samþykkir að að farið verði í framkvæmdir samkvæmt framkominni tillögu og að þær verði fjármagnaðar af fjárveitingu til endurbóta á skólahúsnæði samkvæmt framkvæmdayfirliti fjárhagsáætlunar 2016.

Málsnúmer 1407489

08

Bréf Minjastofnunar Íslands um friðlýsingu Breiðabólstaða, dags. 20.06.16.

Lagt fram.