Styrkir úr Orkusjóði
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
30. fundur
Ráðgjafanefnd Orkusjóðs fjallaði um 33 umsóknir á grundvelli ákvæða reglugerðar nr. 185/2016 um Orkusjóð og verklagsreglur nefndarinnar nr. 654, 29. júní 2016. Nefndin afgreiddi tillögur sínar um afgreiðslu umsóknanna til iðnaðar- og viðskiptaráðherra á fundi 22.11.16.
Garðabæ er veittur styrkur til uppsetningar á einni hraðhleðslustöð við Garðatorg. Styrkupphæðin nemur 50% af áætluðum kostnaði við hraðhleðslustöð.
Verkefnið í vinnslu áfram.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
1. (1767). fundur
Bæjarstjóri kynnti málið og greindi frá því að næsta skref væri að finna staðsetningu fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla. Málið rætt.
Lagt fram og vísað til kynningar í umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
11. fundur
Erindið lagt fram til kynningar í skipulasgnefnd að tillögu bæjarráðs.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
25. fundur
Orkusjóður auglýsir styrki til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla. Við úthlutun styrkjanna verður sérstök áhersla lögð á eftirfarandi:
Að verkefnið auki aðgengi sem flestra landsmanna að innviðum fyrir hleðslu rafbíla á landsvísu.
Að rekstur þeirra innviða sem umsókn snýr að verði tryggður í a.m.k. 3 ár.
Hvernig staðið verði að upplýsingagjöf til neytenda og opinberra aðila.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2016.
Umhverfisstjóra er falið að sækja um styrk til Orkusjóðs með Garðatorg í huga.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
05
26. (1743). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og til kynningar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.